Veiðiþjófnaður á Austurlandi - 2 tarfar skotnir utan kvóta
Starfsmenn Náttúrustofu Austurlands fundu í gær hræ af tveimur nýlega skotnum hreindýrum við mynni Hvaldals, sunnan Álftafjarðar. Skammt frá þjóðveginum komu þeir auga á framparta af tveimur tveggja vetra hreintörfum. Skarphéðinn Þórisson líffræðingur segir greinilegt að dýrin hafi verið skotin daginn áður..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraÍslensk hönnun á rjúpnavestum geysivinsæl
Íslensk veiðivesti sem hönnuð eru og framleidd hjá litlu fyrirtæki á Húsavík eru á góðri leið með að verða útflutningsvara. Vestið er sérstaklega hannað með öryggi skotveiðimanna í huga. Þegar Elsa Borgarsdóttir, eigandi hönnunarhússins Ískeldu á Húsavík, hafði fregnir af því að íslenska rjúpnaveiðimenn vantaði hentug veiðivesti fyrir íslenskar aðstæður dreif hún í því að hanna slík vesti í samstarfi við þrautreynda veiðimenn á Húsavík..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Dýralæknir andvígur flutning Hreindýra á Vestfirði
Yfirdýralæknir segir ekki koma til greina að leyfa flutning á hreindýrum frá Austurlandi til Vestfjarða. Þau gætu borið með sér sauðfjársjúkdóma. Minnihlutinn í bæjarstjórn Vesturbyggðar vill að komið verði upp hreindýrastofni á Vestfjörðum. Eins og fram hefur komið hafa fulltrúar Samstöðu, í bæjarstjórn Vesturbyggðar, lagt til að sótt verði um leyfi Umhverfisstofnunar til að fjölga hreindýrum á Íslandi..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Mun lakari veiði á Rjúpu en í fyrra skv fyrstu tölum
Rjúpnaveiðin hefur það sem af er hausti gengið mun verr en í fyrra. Þetta eru niðurstöður fyrstu athugana Náttúrufræðistofnunar. Veiðimenn eru hvattir til að klippa annan vænginn af rjúpum sem þeir veiða og senda stofnuninni svo hægt sé að aldursgreina fuglana. Nú þegar hafa vængir af 607 rjúpum borist. 77 prósent fuglanna eru ungar - það er fuglar sem eru eins árs eða yngri..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraNáttúru- og umhverfis verðlaun Norður landaráðs 2011
Þema náttúru- og umhverfis verðlauna Norðurlandaráðs 2011 er sjálfbær ferðaþjónusta. Verðlaunin verða veitt í 17. sinn og nema 350.000 dönskum krónum. Þau verða veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur verið í fararbroddi og stuðlað að því að draga úr umhverfisáhrifum ferðaþjónustu á Norðurlöndum.
Lesa meira
Eftirlit með Rjúpnaveiði ábótavant!
Það þarf sameiginlegt átak til að bæta veiðisiði og sporna við ólöglegum veiðiaðferðum segir Elvar Árni Lund, varaformaður Skotveiðifélags Íslands. Hann segir of lítið eftirlit með rjúpnaveiðum. Veiðitímabilið er nú hálfnað. Að undanförnu hafa borist fréttir af því að lögregla hefur haft afskipti af veiðimönnum sem stunda ólöglegar veiðar og sem dæmi má nefna að lögreglan á Blönduósi gerði á dögunum upptæk vopn og bráð tveggja rjúpnaskytta sem voru á vélsleða við veiðarnar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fordæma bann við sölu á villibráð - Algjört stílbrot
Varaformaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi fordæmir hugmyndir nefndar sem á að fjalla um lagalega stöðu villtra dýra á Íslandi. Hann segir hugmyndirnar til þess fallnar að rýra hlunnindi sem landeigendur hafi haft af skotveiðum. Samtökin gagnrýndu í upphafi hvernig umhverfisráðherra skipaði í nefndina en þeir eiga þar engan fulltrúa.. Axelo axelo@lax-a.is
Viðrar vel til rjúpnaveiða um helgina
Miðað við kortin hjá veðurstofu Ísland fyrir helgina þá lítur spáin þokkalega út, allavega miðað við síðustu helgi. Veiðin þá var víðast hvar róleg en þó frétti ég af veiðimönnum á norðurlandinu sem gerðu fína veiði. Eitthvað var um útköll hjá björgunarsveitum til að leita að skyttum en þó mun rólegra en undanfarinn ár.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Hætt að greiða fyrir refaveiðar!!
Framlög ríkisins til refaveiða falla niður á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Bæjaryfirvöld á Blönduósi telja það mikla skammsýni hjá stjórnvöldum að hætta greiðslunum og skora á þau að endurskoða áformin..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira