Fréttasafn

Toppskarfur

29.10.2010 : Rannsókn sýnir fram á verulega fækkun sjófugla

Ef fram fer sem horfir heldur sjófuglum áfram að fækka við Ísland, segir prófessor í dýrafræði. Veruleg fækkun hefur orðið í stofnum sem dvelja hér á landi á sumrin. Á síðustu tíu til fimmtán árum hefur fækkunin verið langmest hjá Stuttnefju eða 44%, og á Langvíu og Fýl um 30%..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
binni6

28.10.2010 : Rjúpnaveiðin hefst á morgun - Löng bið á enda

Biðin er á enda, rjúpna vertíðin hefst á morgun um allt land með háum skothvellum um heiðar og fjöll. það eru eflaust margar skyttur á leið á veiðislóð í dag, gera klárt og koma sér í gírinn í kvöld, vakna svo eldsnemma í fyrramálið fyrir þessa virðulegu bráð. Í ár má veiða 3 daga í viku, sama fyrirkomulag og í fyrra sem reyndist ágætlega.. þó ekki væru allir á eitt sáttir með það..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rjúpa

27.10.2010 : Vill hert eftirlit með sölu á rjúpu

"Engin viðurlög eru við því að selja rjúpur" segir Sigmar B. Hauksson formaður Skotveiðifélagsins í viðtali við fjölmiðla í gær. Hann vill að eftirlit með sölu rjúpna verði hert í haust. Gera má ráð fyrir að marga sé byrjað að klæja í gikkfingurinn því rjúpnaveiðitímabilið hefst á föstudaginn..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
blesgasir

26.10.2010 : Ungahlutfall hækkar ört hjá Blesgæsinni

Stofn blesgæsarinnar fór mest í um 35.000 fugla fyrir rúmum áratug. Síðan fækkaði mikið í stofninum og var hann kominn í um 24.000 gæsir þegar hann var friðaður 2006. Ungahlutfall blesgæsarinnar er nú um 19%, en var um 7% þegar hún var friðuð 2006. „Þetta eru góðar fréttir,“ segir Arnór Þórir Sigfússon, dýravistfræðingur hjá Verkís, en hann hefur mælt aldurshlutfallið árlega frá friðun. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
gæs

21.10.2010 : Er mikið um særða gæs eftir veiðimenn?

Það er athyglisverð grein í bændablaðinu eftir Emilíu Baldursdóttir frá Syðra Hóli í Eyjafjarðarsveit en hún skorar á umhverfisráðherra að setja reglur um Gæsaveiði. Telur hún að mikið sé um særða gæs eftir veiðimenn upp um allar sveitir og gagnrýnir veiðimenn talsvert..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Haforn

20.10.2010 : Arnarvarp gekk vel í sumar - 38 ungar komust á flug

Arnarvarpið heppnaðist mjög vel á liðnu sumri og er þetta metár í fjölda unga sem komust á legg annað árið í röð sem og fjöldi hreiðra, en verpt var í 49 hreiður í sumar. Fjöldi unga sem komust á legg var 38 úr 27 hreiðrum, en í fyrra voru það 36 ungar sem komust á flug. Það var þá mesti fjöldi frá árinu 2004 þegar lifðu 34 ungar..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
p9

18.10.2010 : Verður gjaldtaka á rjúpnaveiði á mismunandi svæðum í framtíðinni?

Húnaþing vestra á óskoraðan eignarrétt að Arnarvatnsheiði og Tvídægru og má því innheimta gjald fyrir skotveiði á þeim slóðum. Þetta segir oddviti sveitarfélagsins. Skotveiðimenn eru ósáttir við ákvörðun sveitarfélagsins og halda því fram að allir megi veiða þarna endurgjaldslaust. Húnaþing vestra hefur ákveðið að skotveiðimenn eigi að reiða fram gjald fyrir að veiða á svæðum á borð við Arnarvatnsheiði og Tvídægru..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
p7

12.10.2010 : Óbreyttar rjúpnaveiðar frá fyrra ári

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði óbreytt frá fyrra ári. Veiðitímabilið hefst föstudaginn 29. október og stendur til og með sunnudeginum 5. desember. Á tímabilinu verður heimilt að stunda veiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og verða veiðidagar því 18 talsins..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

5.10.2010 : Veiðistjórnun á Hreindýrum - 37 leyfi afturkölluð

Það hefur ekki farið framhjá mörgum veiðimanninum í gegnum árin hvernig Hreindýraveiðum er stjórnað af yfirvöldum. Hvaðan veiðistjórnunar kerfið er fengið væri gaman að vita og við hvað er stuðst þegar ákvarðanir í kringum veiðarnar eru teknar.  Leiðsögumenn, bændur og veiðimenn hafa allir skoðanir á þessum málum og það er annsi gaman að sjá hversu fjölbreyttar þær eru.  Ég rakst á eina inn á ruv.is sem birtist hér að neðan..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar