Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl
Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu
Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?
Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is
Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum
Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna. Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi. Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar. Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Selatalning í Húnaflóa - Aukning á milli ára
Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. Alls tóku 30 manns þátt í talningunni, þar af 25 sjálfboðaliðar. Flestir fóru fótgangandi en einhverjir fóru ríðandi. Auk þess voru nokkrir um borð í selaskoðunarbátnum Brimli en þeir töldu seli við innanverðan Miðfjörð..Axelo axelo@lax-a.is
Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!
Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax
Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land. Um er að ræða fiskeldisstöðina Viking Fjord en laxarnir sluppu úr kvíum sínum þegar verið var að leggja rör við hlið þeirra. Svo óheppilega vildi til að við þá vinnu rifnuðu netin í kvíunum og laxahjörðin slapp út í fjörðinn sem þær eru staðsettar í..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira