Fréttasafn

Bjossi i Russlandi

24.2.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Búinn að vera að síðan 1968

Að þessu sinni er viðmælandi minn Björn nokkur Björnsson, mikill veiðiáhugamaður sem og vinur. Það kemur ekki nokkur maður að tómum kofanum þegar rætt er við Björn um veiði en hann hefur verið að allar götur síðan 1968 og komið víða við. Athyglisvert er að þegar við rýnum í komandi sumar þá telur Björn að Tungufljót muni koma á óvart.. kíkjum á hvað hann hefur að segja..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Axelo á Hreindýri 2

18.2.2010 : Hvað er F.L.H hornamæling á hreindýrum

Árið 2004 byrjuðu horna mælingar á íslenska hreindýra stofninum. Þá var stofnuð sérstök hornamælingar nefnd innan F.L.H. (Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum) og hefur hún verið starfandi síðan. Meiningin er að gefa út bók eða lista yfir þær krúnur sem mældar eru, en til þess að komast í bók þarf nefndin að fá krúnuna til mælingar..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
IMGP0566

18.2.2010 : Framkvæmdir og breytingar á veiðihúsum hjá Lax-á 2010

Stór hluti veiðinnar er að koma heim í veiðihús að loknum veiðidegi og hafa það huggulegt, skiptast á skemmtilegum veiðisögum frá raunum dagsins, borða góðan mat og hvílast vel. Það eru fyrirhugaðar nokkrar breytingar fyrir sumarið á nokkrum veiðihúsum hjá okkur og geta menn kynnt sér það hér að neðan..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Skuli 2

12.2.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Er bjartsýnn á veiði næsta sumar

Einn er sá maður í veiðibrannsanum sem þekkir hvað best til við bakka Eystri Rangár. Skúli Kristinsson, leiðsögumaður til margra ára er aflakló mikil og hefur sennilega veitt meira af laxi en hinn venjulegi maður. Ég tók spjall á Skúla og fékk hann til að segja mér helstu leyndardóma Eystri Rangár, en þar kemur hann inn á athyglisverðan punkt, hann mælir með fyrstu 2 vikunum í Júlí sem stórlaxa tíma!! Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Reindeer

12.2.2010 : 2.800 umsóknir hafa borist til hreindýraveiða

2.800 umsóknir hafa borist til Umhverfisstofnunar fyrir Hreindýra veiðileyfi nú í ár. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 15.feb n.k. Í boði eru 1.272 veiðileyfi, örlítið fleiri en í fyrra en þá var gefin út kvóti á 1.333 dýr. Í ár skiptist kvótinn þannig að leyft verður að skjóta 860 Hreinkýr og 412 Hreintarfa. Þetta er svipaður fjöldi umsókna og á sama tíma í fyrra en þá bárust alls 3.262 umsóknir og í boði voru 1.333 dýr.  Fyrir þá sem þetta lesa þá má benda á það að ef þið fáið ekki leyfi hér heima þá bjóðum við hér hjá Lax-á uppá veiðiferðir til Grænlands en þar er ekki síðri veiði á ferðinni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
24 pounder Henrik Andersen

12.2.2010 : Veiðin í Kau TaPen - 3 yfir 20 pund á land

Vikan sem leið í Kau TaPen var eftirminnileg fyrir veiðimenn, alls komu 67 fiskar á land, meðalþyngdin var 9.5 pund. 10 fiskar fóru yfir 15 pund og 3 yfir 20 pund!! Engin smáveiði þar á ferð. Mikið vatn var í ánni í byrjun vikunnar, sem svo sjatnaði á hverjum degi. Töluverður vindur var, vatnið var örlítið litað og hitinn á bilinu 7°c – 11.5°c. Vinsælasta flugan var Collie Dog. Veiðimenn voru með sökklínur á flestum stöðum sem skiluðu þessum góða árangri..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
VM115

11.2.2010 : Fréttir frá Villa Maria – 29 jan til 4ða feb

Vikan hófst með látum en strax á fyrsta degi kom flóð í ánna sem nánast gerði hana óveiðanlega, það breyttist þó fljótlega og veiðin datt í gang. Á meðan á flóðinu stóð, fóru leiðsögumenn með gesti sína að veiða í nálægu vatni þar sem veiðin var mjög góð, silungar 5-7 pund, betra en að hanga upp í húsi og hnýta flugur.  Stærsti fiskur vikunnar var 24 pund en vegna ástandsins á ánni veiddust ekki nema 10 sjóbirtingar þessa vikuna, allt þó tröll á bilinu 15-20 pund..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Bella Vista 29.1 - 4.2 2010

11.2.2010 : Fréttir frá Bella Vista - Stærsti fiskurinn var 19 pund

Veiðin er kominn á fleygiferð í Argentínu og er það almennt umtalað af veiðimönnum að veiðin sé í betri kantinum miðað við síðast liðin ár. Í Bella Vista, Rio Gallegos, var veiðin mjög góð, meðalþyngdin var 11.47 pund. Menn voru að nota Tvíhendur með flotlínum og sökkenda, stripp tæknin virkaði vel sem og gamla góða djiggið. Vinsælusti flugurnar voru litlar einkrækjur með væng í einum lit! Þær fjólubláu voru að virka best. Heildarveiðin var 62 fiskar, sá stærsti var 19pund og allur fiskurinn var nýgenginn og fallegur í holdi. Vatnsmagnið í ánni er í toppstandi, hitastigið er við kjörhita en mikill vindur var alla vikuna sem gerði þeim eldri erfitt fyrir..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

8.2.2010 : Fyrsti vorboðinn – Svartfugl kominn í Ystaklett

Fyrsti vorboðinn í hugum margra íbúa Vestmannaeyja birtist í gær, óvenju snemma, þegar svartfuglinn settist í Bergið í Ystakletti. Að sögn heimamanna er þetta með fyrsta móti en í fyrra settist svartfuglinn upp 15. febrúar. Hlýtt hefur verið í Eyjum að undanförnu miðað við árstíma..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rotta

8.2.2010 : Sekt fyrir að drepa rottu - Ekki er öll vitleysan eins!

Breska sjónvarpsstöðin ITV hefur verið sektuð um 3000 dollara vegna rottu sem var drepin og étin í raunveruleikaþætti sem tekinn var upp í Ástralíu. Það gerir um 387 þúsund íslenskar krónur. Þáttaröðin heitir „I am a Celebrity" og fjallar um þekkt fólk sem þarf að bjarga sér við erfiðar aðstæður gjarnan í óbyggðum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Kria

8.2.2010 : Fuglabók gefin út 100 árum síðar

Í haust verður gefin út bókin Íslenzkir fuglar eftir Benedikt Gröndal. Bókin hefur geyma litaðar teikningar Benedikts af 100 fuglum ásamt skrautskrifuðum lýsingum á þeim. Rúmlega hundrað ára gamalt handrit er nú loks komið í hendur útgefanda. Benedikt ætlaði bókina til útgáfu og vildi með henni búa til safn teikninga af öllum íslenskum fuglum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Bjossi 1

5.2.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Er gamall og ryðgaður Þingeyingur málið?

Það er ávallt gaman að hitta menn í spjall um veiði hvar sem það er, margar sögur fljúga og ljúga og geta vakið menn uppúr skammdeginu sem fylgir biðinni miklu á milli veiðitímabila. Ég mun á næstu vikum taka púlsinn á nokkrum valinkunnum veiðimönnum sem ég þekki til og leyfa ykkur lesendum að njóta. Fyrstur af stað er Björn Þór, smiður fyrir Lax-á, en hann hefur frá mörgu skemmtilegu að segja enda vanur maður á ferð..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
D12

2.2.2010 : Árleg byssusýning veiðisafnsins – Sjón er sögu ríkari

Starfsár Veiðisafnsins á Stokkseyri 2010 hefst með árlegri byssu sýningu í samvinnu við verslunina Vesturröst laugardaginn 6. og sunnudaginn 7. febrúar 2010 frá kl. 11-18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri. Verður fjölbreytt úrval skotvopna svo sem haglabyssur, rifflar, vélbyssur, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu frá seinni heimstyrjöld í eigu Hinriks safnara til sýnis og ein af haglabyssum Jóns Þorsteinssonar frá Ólafsfirði. Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Viddi fluga nr 2

1.2.2010 : Gallery flugur með fjölbreytt vöruúrval - Kíktu við

Það hafa verið miklar sviptingar á veiðibúða markaðnum undanfarið, mikið um að stórir aðilar kaupi litlu kallanna. Einn er þó ekki til sölu, svo er víst, en það er hann Viddi hjá Gallery flugum, en líf hans hefur snúist meira en minna um flugur og fluguveiði. Ég heyrði í Vidda og fékk í gott spjall..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Ballogie_Feb._09_028

1.2.2010 : Laxveiðiáin Dee opnar í Skotlandi í dag – Veðurútlit er gott fyrir veiðimenn

Hin vel þekkta Laxveiðiá Dee í Skotlandi opnaði fyrir veiðimenn nú í morgun. Ég tók símann á Robert Harper sem stýrir veiðunum og spurði hann út í ástandið á ánni, veðri og fleira. Hann var reyndar á fullu í að fylgjast með svæðunum en hann hafði ekki heyrt neinar fréttir ennþá. Mikill snjór er ennþá á svæðinu, þó er áin í góðu standi og veðrið gæti ekki verið betra til veiða..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Myndadiskur_2004_023

24.8.2011 : Þriðja hver rjúpa án unga

Þriðja hver rjúpa á Norðausturlandi er án unga og er greinilegt að færri fuglar verða á veiðislóðum í vetur. Fyrirkomulag á rjúpnaveiðinni í vetur hefur ekki verið ákveðið. Niðurstöður árlegrar rjúpnatalningar leiða í ljós að rjúpnastofninn á Norðausturlandi er mun minni en undanfarin ár..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
sk1

22.8.2011 : Gæsaveiðin fer rólega af stað

Skotveiðimenn um land allt fóru af stað á Laugardaginn en þá hófst Gæsaveiðin formlega. Misjafnt gengi var um land allt, allflestir voru þó á eftir Heiðargæsinni en skv veiðivísi var gengið misjafnt. Var það þó helst að frétta að ungfuglinn væri óvenjulega smár og lágt hlutfall af honum í hópunum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

19.8.2011 : Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir.

Lesa meira
 
YtriAegissidufoss

18.8.2011 : Lausar stangir næstu daga

Við eigum spennandi stangir lausar næstu daga og í næstu viku. Veiðin hefur verið að taka við sér í flest öllum ám og Rangárnar að gefa þriðjahvern lax sem veiðist á landinu. Frábært tækifæri til að skreppa í laxveiði. johann@lax-a.is Lesa meira
 
DEE200712

5.8.2011 : Laxveiði í Skotlandi

Við eigum lausar stangir í haust í áni Dee nánar tiltekið á Lower Crathes svæðinu. Laxveiðin í Skotlandi nær hámarki á vorin og á haustin og er því um að ræða frábæran tíma í áni. Veiðin er í rólegra móti um mitt sumar en þrátt fyrir það eru á meðaltali 130 laxar að veiðast á viku í allri áni. Lesa meira
 
Halla_05_HakanSteenlund_200

3.8.2011 : Hross í kringum veiðisvæði Hallá

Veiðimaður sem var í Hallá um verslunarmannahelgina hafði samband við okkur og vildi koma því á framfæri að hestar væri við veiðisvæði í áni. Hestarnir sækjast í saltið á bílunum og geta valdið tjóni a lakki bifreiðarinnar. Gott er að hafa varann á þegar menn leggja bílum við veiðistaði og athuga hvort hross séu á svæðinu.

Lesa meira
 
Grahegri

18.7.2011 : Nýr Íslenskur fuglavísir - Tilvalinn fyrir veiðimenn

Íslenskur fuglavísir er líklega ein þeirra bóka sem íslenskum ferðalöngum finnst ómissandi í sumarfríið. Þessi vinsæla bók er nú komin út í endurbættri útgáfu. Í þessarri nýju útgáfu hafa um fjörutíu fuglategundir bæst við frá fyrri útgáfum og er þetta rit bæði á íslensku og ensku tungumáli..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar