Veitt með vinum hefst á laugardag - Blanda er í aðalhlutverki
Kalli Lú fer af stað með veiðiþætti sína, Veitt með vinum næsta laugardag kl 17.10 á Stöð2 sport. Ég tók hús á Kalla í gærkvöldi og horfði á 1sta þáttinn um Blöndu í góðra vina hópi. Það er óhætt að mæla með því að menn setji sig í stellingar og næli sér í áskrift því þátturinn er "all in" og býður upp á frábær mundskeið úr þessari skemmtilegu á. Einnig koma fram nokkur leynitrix frá gesti þáttarins sem er enginn annar en Ingi Freyr Ágústsson, fyrrverandi yfirleiðsögumaður í Blöndu til margra ára..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Veiðitími hreindýra lengdur - Tarfaveiðin hefst 15 júlí
Veiðitími á hreindýrum verður fimm dögum lengri í haust en venja hefur verið. Nú verður leyft að veiða hreinkýr frá 1. ágúst n.k. til 20. september. Venjulega hefur veiðitíma á hreinkúm og hreintörfum lokið 15. september. Veiðitíma á hreindýrstörfum lýkur 15. september að venju..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Bóndadagur í dag – Táknar upphaf Þorrans
Þá er þorrinn loksins runninn í garð og framundan eru þorrablót og veislur á víð og dreif um landið þar sem þjóðin gæðir sér á hinu alíslenska fyrirbrigði Þorramat. Þorrablótum fylgir alltaf góð skemmtun, sögur og skrýtnir drykkjuleikir, og gíska ég á það að mikið af veiðmönnum detti saman í vinahóp og fái sér nokkra kalda. Í tilefni dagsins er tilvalið að fræðast á skemmtilegan hátt, njótið dagsins..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Svona er silungsveiði í Víðidalsá - Veiðistaðalýsing
Silungasvæði Víðidalsár á sér marga aðdáendur og hefur svæðið mörg undanfarin ár verið eitt af okkar allra vinsælustu veiðisvæðum. Halldór Þórðarson er einn þeirra sem hefur veitt árlega á svæðinu í nokkurn tíma og þekkir þar hvern stein. Tók hann afar vel í það þegar til hans var leitað eftir upplýsingum um hvernig bera skuli sig að á svæðinu og skrifaði fyrir okkur eftirfarandi veiðistaðalýsingu. Vonandi að hún komi til með að nýtast veiðimönnum vel á komandi sumri..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Hreindýra veiðin fyrir 2010 - Breytingar boðaðar hjá ríkisvaldinu
Leyft verður að veiða 1.272 hreindýr í haust samkvæmt skilavef veiðikorta hjá Umhverfisstofnun. Ekki verður leyft að fella hreindýrskálfa á næsta veiðitímabili og er það breyting frá fyrri árum. Í fyrra voru gefin út 1.333 veiðileyfi á hreindýr. Tarfaveiðileyfi á svæðum 1 og 2 eiga að kosta 125 þúsund krónur hvert og leyfi til veiða á kúm á sömu svæðum kosta 70 þúsund..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Bleikju framleiðsla hjá Hólalaxi – Stefna á að auka framleiðsluna
Stefnt er að því að auka umtalsvert bleikju framleiðslu í Hólalaxi í Hjaltadal. Nú er ársframleiðslan um eitthundrað tonn, en stöðin er með starfsleyfi fyrir 500 tonna framleiðslu á ári. Ásmundur Baldvinsson, rekstrarstjóri Hólalax, segir að tíminn leiði í ljós hvort unnt verði að ná þessari framleiðslu á næstu 5-6 árum, en að því verði stefnt...Axelo axelo@lax-a.is
Kanna vinnslu kalk þörunga – Frönsk verksmiðja hugsanlega á leið í Miðfjörðinn?
Franskt fyrirtæki kannar möguleika á kalk þörungavinnslu úr Miðfirði og Hrútafirði. Verði kalkþörungaverksmiðja sett á stofn yrði um að ræða 10-20 manna vinnustað. Á árunum 1999 til 2004 voru gerðar rannsóknir í Hrútafirði og Miðfirði, sem leiddu í ljós umtalsverðar kalkþörungarnámur í báðum fjörðunum..Axelo axelo@lax-a.is
Vikan fer vel af stað í Rio Grande - Mun betri byrjun en í fyrra
Ég var að fá fréttir frá Bella Vista lodginu í Rio Grande ásamt myndum en veiðin þar er heldur betur að fara vel af stað. Veiðimenn byrjuðu á laugardag og á fyrsta klukkutímanum voru komnir 5 risa birtingar á land, áin er í toppstandi, flott vatnsmagn, gott hitastig, sannkallaðar kjöraðstæður. Hér að neðan má sjá káta veiðimenn með alvöru birtinga, sannkölluð stórveiði..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Ný sería af Veitt með vinum í loftið - Þættirnir koma víða við
Karl Lúðvíksson, betur þekktur sem Kalli Lú, fer nú af stað með nýja seríu af veiðiþáttum sínum, Veitt með vinum. Farið er víða en á meðal viðkomustaða Kalla að þessu sinni er stórkostlegur þáttur úr Blöndu, en þar náði Kalli ásamt vöskum Inga Frey f.v. yfirleiðsögumanni, ótrúlegum skotum frá metsumrinu 2009. Grænland er einnig viðkomustaður hjá Karli sem og mörg frábær veiðisvæði. Þættirnir fara í loftið 30.Janúar og verða sýndir á stöð 2 sport. Ég heyrði aðeins í Kalla og setti á hann nokkrar skemmtilegar spurningar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fjölskrúðugt sjávarlíf í Eyjafirði - Sérstök upplifun að sögn kafara
Fjölskrúðugt sjávardýralíf þrífst nú við við gömlu síldarbræðsluna við Hjalteyri í Eyjafirði. Þar fundust nýlega leifar af krana, sem sökk í óveðri árið 1980. Kraninn er á frá 3 til 11 metra dýpi og veitir fjölda dýrategunda skjól. Gísli A. Guðmundsson, kafaði við Hjalteyri í gærkvöldi ásamt Erlendi Guðmundssyni, félaga sínum, í næturköfun við Hjalteyri.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Hvað er að frétta úr veiðibúðunum - Hvernig lítur sumarið út?
Það eru ekki bara veiðileyfasalar sem nú eru á fullu að undirbúa sig fyrir sumarið, veiðibúðir landsins sanka nú að sér fjölbreyttu vöruúrvali fyrir sumarið og undirbúa sig fyrir komandi átök framundan. Stór hluti veiðinnar er jú að vera með réttu græjurnar. Í öllum veiðibúðum eru menn að störfum með mikla reynslu við árbakkann og oftar en ekki nýtur maður góðs af þekkingu þeirra. Guðmundur Guðmundsson hóf störf hjá Veiðideild Ellingsen í fyrra eftir áralangt starf með eigin verslun, heyrum hvað hann hefur að segja..Axeló axelo@lax-a.is
Lesa meira
Krían flýgur fugla lengst – Flýgur mun lengra en talið var
Árleg ferðalög kríunnar eru mun lengri en talið var. Þetta kom fram við rannsókn, sem gerð var undir stjórn Carstens Egevang hjá Grænlensku náttúrufræðistofunni, og greint er frá í Proceedings of the National Academy of Sciences. Settir voru örlitlir sendar á 11 kríur á Grænlandi og hér á landi og fylgst með ferð þeirra til Suðurpólsins, dvöl þeirra þar, og svo ferðinni aftur norður á bóginn..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Tímabilið er hafið í Rio Grande - Villa Maria fer fyrst af stað með flottri veiði
Tímabilið er hafið í Argentínu og fyrstu veiðimennirnir voru að ljúka veiðum nú um helgina. Þeir voru að veiða í Rio Grande á svæði Villa Maria, þeir fengu 70 fiska, alla bjarta og flotta, sá stærsti var 23 pund. Mest megnis voru menn að veiða með einhendum, flotlínum og á litlar flugur. Áin er á hraðri niðurleið í vatnsmagni og má geta sér til þess að þessvegna sé veiðin svo góð en þetta er helmingi betra en á sama tíma í fyrra. Hitastigið í ánni er um 13 °c. Við fáum nú nýjar fréttir í hverri viku af öllum helstu veiðisvæðunum en Lax-á sendir fjöldan allan af veiðimönnum í ár til Argentínu.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fálkinn enn á ferð í höfuðborginni - Nú með Dúfu að bráð
Glæsilegur fálki gæddi sér á dúfu í garði við Kleifarveg í Reykjavík í gær. Ólafur Níelsen fuglafræðingur segir að sennilegast sé um að ræða ungan karlfugl. Ólafur segir ekki óalgengt að fálkar séu í eða við Reykjavík. „Þetta er árvisst að þeir komi. Þeir eru hérna allan veturinn, koma á haustin og fara á vorin. Þeir eru hér í ætisleit," segir Ólafur. Hann segir að fálkar fari ógjarnan frá mat. Því sé stundum hægt að komast mjög nærri þeim ef þeir eru með fæði. Ólafur segir mögulegt að um sé að ræða sama fálka og sat á þaki húss í Sólheimum í gær..Axeló axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fálki gerði sér dagamun í Sólheimum í Reykjavík
Hörður Ástþórsson húsvörður í Sólheimum í Reykjavík varð var við Fálka á loftnetum húsana nú fyrr í dag. Fálkar halda sig helst nærri freðmýrum og fjallendi sem og við strendur. Aðalfæða fálka er rjúpur en hann veiðir einnig endur, svartfugla og vaðfugla. Ég þurfti að fara upp á þrettándu hæð til þess að taka mynd af honum," segir húsvörðurinn Hörður Ástþórsson, er fálkinn gerði sér dagamun og sveif á milli blokkanna í Sólheimum í Reykjavík. Afar sjaldgæft er að slíkt gerist og mjög skrýtið ef litið er á fæðuframboð Fálkans..Axelo axelo@lax-a.is
Æðarfugls banar í Hvalfirði fá að líkindum sekt
Tveir menn sem skutu æðarfugla á Hvalfirði í nóvemberbyrjun í fyrra verða líklega sektaðir fyrir athæfið. Það varðar brot á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum. Mennirnir sem eru á þrítugsaldri gátu framvísað bæði byssuleyfum og veiðikortum. Samkvæmt upplýsingum frá ákærusviði lögreglu lýkur málinu væntanlega með sekt upp á nokkra tugi þúsunda..Axelo axelo@lax-a.is
Tvö ár frá klórslysinu í Varmá - Ýmislegt að koma í ljós
Nú eru liðin rúm tvö ár frá klórslysinu í Varmá þegar mikið magn af óblönduðum klór rann frá sundlauginni í Hveragerði í Varmá. Klórslysið olli talsverðum fiskdauða í ánni og fundust dauðir fiskar á 4–5 km kafla neðan klórlekans. Rannsóknir Veiðimálastofnunar á seiðabúskap árinnar skömmu eftir slysið bentu til þess að nánast öll seiði hefðu drepist á a.m.k. tveggja km kafla neðan sundlaugarinnar. Óttast var að klórslysið gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fiskstofna Varmár og í versta falli tæki það stofnana mörg ár að ná fyrri styrk..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraÍslenskar gæsir fresta för sinni til Bretlands
Fjórir veiðimenn skutu 27 grágæsir í Landeyjum á Suðurlandi í gær, sem telst til tíðinda á þessum árstíma. Þær eru yfirleitt farnar til Bretlands eigi síðar en í desember, en heimilt er að skjóta þær til 15. mars. Að sögn veiðimannanna voru þarna gæsir í þúsunda tali og voru þær sem þeir skutu, í góðum holdum..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Stjórnvöld hafa ákveðið að styrkja áfram refaveiðar
Stjórnvöld hafa fallið frá áformum um að hætta að endurgreiða sveitarfélögum framlag til veiðimanna vegna veiða á ref og mink. Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að 17 milljónum króna verði varið til þessara endurgreiðslna á næsta ári. Nefndin hvetur umhverfisráðherra til að skipa nefnd hið fyrsta til að fara heildstætt yfir þennan málaflokk í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Rjúpa á faraldsfæti - 46 km frá varpstað
Rjúpa sem var merkt við Hallbjarnastaði á Tjörnesi 18. maí í fyrra endaði líf sitt á Grenivíkurfjalli 8. nóvember sl. þegar veiðimaður skaut hana. Frá þessu er greint á heimasíðu Tjörneshrepps. Á rjúpuna var einnig fest senditæki og var því unnt að fylgjast með henni í sumar og haust..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Ný lög er varða veiðifélög samþykkt á Alþingi - Eyðibýli fá atkvæðarétt í veiðifélögum
Á síðustu starfsdögum Alþingis fyrir jól voru gerðar lagabreytingar sem varða veiðiréttareigendur og rétt er að vekja athygli á. Lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði var breytt á þann veg, að annars vegar er eigendum eyðijarða tryggður atkvæðisréttur á fundum í veiðifélagi, líkt og var fyrir lagabreytinguna 2006, og hins vegar að sú háttsemi að hefja framkvæmd í veiðivatni, án þess að leyfi hafi verið aflað skv. 1. mgr. 33. gr. laganna, sé refsiverð..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira