Stærsti Hreintarfurinn vóg 133kg - Veiddur á sv 6
Þyngsti Hreintarfurinn sem felldur var á tímabilinu vóg hvorki meira né minna en 133kg. Hann var felldur á svæði 6, nánar tiltekið upp við Ódáðavötn. Veiðimaður var Jón Helgason og leiðsögumaður hans var Jóhann Steindórsson. Eins og áður hefur komið fram var allur kvótinn nýttur í ár og spurning hvað gerist fyrir næsta ár. Mikið hefur verið rætt um að breyta þurfi skipulagi úthlutunar og þessháttar en það verður afar fróðlegt að sjá hvað hæstvirtur frú!!, Umhverfisráðherra gerir í þeim efnunum..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Sjaldséðir erlendir gestir yfir hátíðarnar - Spurning um landnám?
Brúnheiðar og gráhegrar eru meðal erlendra fuglasem dvelja á landinu um hátíðarnar þrátt fyrir frost og napra vinda. Í hópi hinna erlendu gesta eru æðardrottingar, silkitoppur, glóbrystingar, bókfinkur, bleshæna og keldusvín. Búnheiðirinn (Circus aeruginosus) er sjaldgæfur fugl hér á landi, en á óðul sín í Evrópu og Asíu frá suðri og allt norður á Skán í Svíþjóð. En með hlýnandi loftslagi er hugsanlegt að hann hyggi á landnám hér í norðri..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraAðgengi að veiðiám torveldað?
Erfitt verður að komast að veiðiám og -vötnum, verði frumvarp um breytingar á náttúruverndarlögum samþykkt. Þetta segir Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga. Þá virðist frumvarpið koma í veg fyrir að smala megi á fjórhjóli..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraOpna stjórnvöld augun? - Hægt að auka arðsemi Hreindýraveiða
Auka mætti arðsemi hreindýraveiða með því að breyta kerfinu og selja veiðileyfin á markaðsverði. Þetta segir hagfræðingur sem skoðað hefur efnahagsleg áhrif skotveiða á Íslandi. Hagsmunaaðilar eru sammála um að ónýtt tækifæri séu í skotveiðitengdri ferðaþjónustu..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Flundra ógnar bleikjustofni Hvítár - Fræðingar benda á hlýnun
Bleikjan, Salvelinus alpinus, er að margra áliti einhver besti matfiskur sem völ er á og sportveiðimönnum leiðist heldur ekki að glíma við bleikjuna í ám og vötnum. Nú bregður hinsvegar þannig við að bleikjustofninn á undir högg að sækja. Á vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði var ársveiðin um fjögur þúsund bleikjur fyrir örfáum árum en hefur hrapað niður í aðeins fjögur hundruð fiska..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Rjúpnaveiðinni lýkur nú um helgina
Nú rennur í garð síðasta helgin fyrir Rjúpnaskyttur landsins og má búast við að margir flykkist út og noti tækifærið til að ná í Jólasteikina. Það verður að segjast að árið í ár er búið að vera köflótt í veiðum, almenningur gefur frekar lítið á meðan að lokuðu prívat svæðin gefa vel. Spyr maður sig þá hvort ekki sé vænlegra að leigja sér land einhversstaðar heldur en að ganga almenning þó það sé nú alltaf jafn ánægjulegt..Axelo axelo@lax-a.is
Ný bók frá Bendernum - Á allra færi
„Á allra færi“ er handhæg og auðlesin bók um stangveiði. Hún er fyrir alla fjölskylduna og er ætlað að efla áhuga hennar á veiði og útiveru. Bókin er samvinnuverkefni hjónanna Auðar I. Ottesen og Páls Jökuls Péturssonar og Gunnars Bender. Útgefandi er Sumarhúsið og garðurinn. Fjallað er um ár og fjölskylduvæn veiðivötn, helstu þætti stangveiði, veiðiaðferðir og klæðnað. Í bókinni er einnig fróðleikur um fisktegundir og nokkrar góðar uppskriftir fljóta með..Axelo axelo@lax-a.is
Laxveiðin í Skotlandi byrjar 1sta Febrúar
Fyrir þá sem hvað mestan þorstan hafa fyrir laxveiðinni og kitlar núna hressilega í fingurna um að komast í veiði þá er gaman að segja frá því að laxveiðin hefst í Skotlandi 1 feb nk. það hefur gengið vel hjá okkur að selja á veiðisvæðin okkar í Dee og nú er svo komið að opnunardagarnir eru þeir einu sem við eigum lausa. Veiðin í opnun fer eftir veðri en hefur yfirleitt gefið þónokkra laxa. Áhugasamir geta haft samband við okkur hér á skrifstofunni fyrir frekari upplýsingar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fleiri Hreindýr skotin í óleyfi fyrir austan
Komið hefur í ljós að fimm hreindýr voru skotin í óleyfi í Hvaldal, sunnan Álftafjarðar á Suðausturlandi, í byrjun vikunnar. Í fyrstu var talið að dýrin hefðu verið tvö, en við nánari eftirgrennslan fundust hræ af þremur dýrum til viðbótar. Tvö dýranna höfðu verið skotin um fimmtíu metra frá þjóðvegi eitt, en innar í dalnum komu í ljós leifar af fleiri dýrum..Axelo axelo@lax-a.is Lesa meira
Veiðisvæðin okkar að detta í sölu á netinu
Veiðisvæðin eru þessa daganna að detta í vefsölu hjá okkur eitt af öðru. Nú þegar má þar finna fimm svæði, Hólsá, silungasvæði Svartár, Brynjudalsá, Norðlingafljót og silungasvæði Tungufljóts. Áhugasamir geta skoðað lausa daga inn á söluvef okkar www.agn.is . Nú er því um að gera að skella sér inná vefinn og tryggja sér örugga daga fyrir næsta sumar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Nú styttist í að veiðitímabilið hefjist í Argentínu
Veiðitímabilið fer að fara af stað í Rio Grande, Argentínu á næstu dögum. Þar er sem fyrr hinn alræmdi sjóbirtingur sem menn eru að eltast við. Ferðalagið til Argentínu er annsi langt en hverrar mínútu virði. Veiðin er frábær, öll þjónusta við veiðimenn sem og aðbúnaður til fyrirmyndar. Sem fyrr mun lax-á bjóða uppá ferðir þangað fyrir viðskiptavini sína, áhugasamir geta haft samband hingað á skrifstofuna fyrir frekari upplýsingar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Háhyrningar á fuglaveiðum í Berufirði
Háhyrningar eru þekktir af sérstökum veiðiaðferðum, en stundum getur þó verið erfitt að greina á milli þess hvort þeir ráðast að bráð vegna svengdar eða hvort um leik sé að ræða. Síðastliðinn mánudag mátti sjá þegar fjórir háhyrningar syntu um Berufjörð og var atgangur mikill þar sem þeir réðust að hverjum fuglahópnum á fætur öðrum alveg uppi í landsteinum..axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Veiðiþjófnaður á Austurlandi - 2 tarfar skotnir utan kvóta
Starfsmenn Náttúrustofu Austurlands fundu í gær hræ af tveimur nýlega skotnum hreindýrum við mynni Hvaldals, sunnan Álftafjarðar. Skammt frá þjóðveginum komu þeir auga á framparta af tveimur tveggja vetra hreintörfum. Skarphéðinn Þórisson líffræðingur segir greinilegt að dýrin hafi verið skotin daginn áður..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraÍslensk hönnun á rjúpnavestum geysivinsæl
Íslensk veiðivesti sem hönnuð eru og framleidd hjá litlu fyrirtæki á Húsavík eru á góðri leið með að verða útflutningsvara. Vestið er sérstaklega hannað með öryggi skotveiðimanna í huga. Þegar Elsa Borgarsdóttir, eigandi hönnunarhússins Ískeldu á Húsavík, hafði fregnir af því að íslenska rjúpnaveiðimenn vantaði hentug veiðivesti fyrir íslenskar aðstæður dreif hún í því að hanna slík vesti í samstarfi við þrautreynda veiðimenn á Húsavík..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Dýralæknir andvígur flutning Hreindýra á Vestfirði
Yfirdýralæknir segir ekki koma til greina að leyfa flutning á hreindýrum frá Austurlandi til Vestfjarða. Þau gætu borið með sér sauðfjársjúkdóma. Minnihlutinn í bæjarstjórn Vesturbyggðar vill að komið verði upp hreindýrastofni á Vestfjörðum. Eins og fram hefur komið hafa fulltrúar Samstöðu, í bæjarstjórn Vesturbyggðar, lagt til að sótt verði um leyfi Umhverfisstofnunar til að fjölga hreindýrum á Íslandi..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Mun lakari veiði á Rjúpu en í fyrra skv fyrstu tölum
Rjúpnaveiðin hefur það sem af er hausti gengið mun verr en í fyrra. Þetta eru niðurstöður fyrstu athugana Náttúrufræðistofnunar. Veiðimenn eru hvattir til að klippa annan vænginn af rjúpum sem þeir veiða og senda stofnuninni svo hægt sé að aldursgreina fuglana. Nú þegar hafa vængir af 607 rjúpum borist. 77 prósent fuglanna eru ungar - það er fuglar sem eru eins árs eða yngri..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraNáttúru- og umhverfis verðlaun Norður landaráðs 2011
Þema náttúru- og umhverfis verðlauna Norðurlandaráðs 2011 er sjálfbær ferðaþjónusta. Verðlaunin verða veitt í 17. sinn og nema 350.000 dönskum krónum. Þau verða veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur verið í fararbroddi og stuðlað að því að draga úr umhverfisáhrifum ferðaþjónustu á Norðurlöndum.
Lesa meira
Eftirlit með Rjúpnaveiði ábótavant!
Það þarf sameiginlegt átak til að bæta veiðisiði og sporna við ólöglegum veiðiaðferðum segir Elvar Árni Lund, varaformaður Skotveiðifélags Íslands. Hann segir of lítið eftirlit með rjúpnaveiðum. Veiðitímabilið er nú hálfnað. Að undanförnu hafa borist fréttir af því að lögregla hefur haft afskipti af veiðimönnum sem stunda ólöglegar veiðar og sem dæmi má nefna að lögreglan á Blönduósi gerði á dögunum upptæk vopn og bráð tveggja rjúpnaskytta sem voru á vélsleða við veiðarnar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fordæma bann við sölu á villibráð - Algjört stílbrot
Varaformaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi fordæmir hugmyndir nefndar sem á að fjalla um lagalega stöðu villtra dýra á Íslandi. Hann segir hugmyndirnar til þess fallnar að rýra hlunnindi sem landeigendur hafi haft af skotveiðum. Samtökin gagnrýndu í upphafi hvernig umhverfisráðherra skipaði í nefndina en þeir eiga þar engan fulltrúa.. Axelo axelo@lax-a.is
Viðrar vel til rjúpnaveiða um helgina
Miðað við kortin hjá veðurstofu Ísland fyrir helgina þá lítur spáin þokkalega út, allavega miðað við síðustu helgi. Veiðin þá var víðast hvar róleg en þó frétti ég af veiðimönnum á norðurlandinu sem gerðu fína veiði. Eitthvað var um útköll hjá björgunarsveitum til að leita að skyttum en þó mun rólegra en undanfarinn ár.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Hætt að greiða fyrir refaveiðar!!
Framlög ríkisins til refaveiða falla niður á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Bæjaryfirvöld á Blönduósi telja það mikla skammsýni hjá stjórnvöldum að hætta greiðslunum og skora á þau að endurskoða áformin..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraRannsókn sýnir fram á verulega fækkun sjófugla
Ef fram fer sem horfir heldur sjófuglum áfram að fækka við Ísland, segir prófessor í dýrafræði. Veruleg fækkun hefur orðið í stofnum sem dvelja hér á landi á sumrin. Á síðustu tíu til fimmtán árum hefur fækkunin verið langmest hjá Stuttnefju eða 44%, og á Langvíu og Fýl um 30%..Axelo axelo@lax-a.is
Rjúpnaveiðin hefst á morgun - Löng bið á enda
Biðin er á enda, rjúpna vertíðin hefst á morgun um allt land með háum skothvellum um heiðar og fjöll. það eru eflaust margar skyttur á leið á veiðislóð í dag, gera klárt og koma sér í gírinn í kvöld, vakna svo eldsnemma í fyrramálið fyrir þessa virðulegu bráð. Í ár má veiða 3 daga í viku, sama fyrirkomulag og í fyrra sem reyndist ágætlega.. þó ekki væru allir á eitt sáttir með það..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Vill hert eftirlit með sölu á rjúpu
"Engin viðurlög eru við því að selja rjúpur" segir Sigmar B. Hauksson formaður Skotveiðifélagsins í viðtali við fjölmiðla í gær. Hann vill að eftirlit með sölu rjúpna verði hert í haust. Gera má ráð fyrir að marga sé byrjað að klæja í gikkfingurinn því rjúpnaveiðitímabilið hefst á föstudaginn..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Ungahlutfall hækkar ört hjá Blesgæsinni
Stofn blesgæsarinnar fór mest í um 35.000 fugla fyrir rúmum áratug. Síðan fækkaði mikið í stofninum og var hann kominn í um 24.000 gæsir þegar hann var friðaður 2006. Ungahlutfall blesgæsarinnar er nú um 19%, en var um 7% þegar hún var friðuð 2006. „Þetta eru góðar fréttir,“ segir Arnór Þórir Sigfússon, dýravistfræðingur hjá Verkís, en hann hefur mælt aldurshlutfallið árlega frá friðun. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Er mikið um særða gæs eftir veiðimenn?
Það er athyglisverð grein í bændablaðinu eftir Emilíu Baldursdóttir frá Syðra Hóli í Eyjafjarðarsveit en hún skorar á umhverfisráðherra að setja reglur um Gæsaveiði. Telur hún að mikið sé um særða gæs eftir veiðimenn upp um allar sveitir og gagnrýnir veiðimenn talsvert..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Arnarvarp gekk vel í sumar - 38 ungar komust á flug
Arnarvarpið heppnaðist mjög vel á liðnu sumri og er þetta metár í fjölda unga sem komust á legg annað árið í röð sem og fjöldi hreiðra, en verpt var í 49 hreiður í sumar. Fjöldi unga sem komust á legg var 38 úr 27 hreiðrum, en í fyrra voru það 36 ungar sem komust á flug. Það var þá mesti fjöldi frá árinu 2004 þegar lifðu 34 ungar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Verður gjaldtaka á rjúpnaveiði á mismunandi svæðum í framtíðinni?
Húnaþing vestra á óskoraðan eignarrétt að Arnarvatnsheiði og Tvídægru og má því innheimta gjald fyrir skotveiði á þeim slóðum. Þetta segir oddviti sveitarfélagsins. Skotveiðimenn eru ósáttir við ákvörðun sveitarfélagsins og halda því fram að allir megi veiða þarna endurgjaldslaust. Húnaþing vestra hefur ákveðið að skotveiðimenn eigi að reiða fram gjald fyrir að veiða á svæðum á borð við Arnarvatnsheiði og Tvídægru..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Óbreyttar rjúpnaveiðar frá fyrra ári
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði óbreytt frá fyrra ári. Veiðitímabilið hefst föstudaginn 29. október og stendur til og með sunnudeginum 5. desember. Á tímabilinu verður heimilt að stunda veiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og verða veiðidagar því 18 talsins..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Veiðistjórnun á Hreindýrum - 37 leyfi afturkölluð
Það hefur ekki farið framhjá mörgum veiðimanninum í gegnum árin hvernig Hreindýraveiðum er stjórnað af yfirvöldum. Hvaðan veiðistjórnunar kerfið er fengið væri gaman að vita og við hvað er stuðst þegar ákvarðanir í kringum veiðarnar eru teknar. Leiðsögumenn, bændur og veiðimenn hafa allir skoðanir á þessum málum og það er annsi gaman að sjá hversu fjölbreyttar þær eru. Ég rakst á eina inn á ruv.is sem birtist hér að neðan..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Tíu kýr eftir á síðasta degi veiða
Síðasti dagur hreindýraveiða var í gær. Tarfaveiði lauk 15. september en veiða má kýr fram að miðnætti þ. 20.9. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun keppast menn nú við að ná síðustu kúnum og eru alls tíu veiðimenn á hreindýraslóð. Ekki náðist að veiða upp í allan tarfakvótann í ár; tveir urðu eftir..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Gæsaveiði fer rólega af stað - Stofninn stendur vel
Gæsaveiðitímabilið er hafið og virðist fara frekar rólega af stað. Síðustu tvö ár hefur verið aukning í útgáfu veiðileyfa. Það fer fiðringur um margan gæsaveiðimanninn þegar líða tekur á sumarið enda hefst gæsaveiðitímabilið 20 ágúst. Gott veður undanfarið hefur þó komið í veg fyrir góða byrjun á veiðitímabilinu. Nú binda gæsaveiðimenn vonir við fyrstu haustlægðirnar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Óttast ofveiði á Fljótsdalshéraði
Stærstur hluti hreindýra hjarðarinnar á helsta veiðisvæðinu hefur fært sig um set og er farinn yfir Jökulsá í Fljótsdal og suður fyrir dalinn. Í viðtali við ruv.is segir Aðalsteinn Jónsson hreindýra leiðsögumaður óvíst hvað skili sér til baka og óttast að of mikið sé veitt af þeim dýrum sem urðu eftir á Fljótsdalsheiði..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraNokkrum stórum landað í Langadalsá
Við vorum að fá bréf frá Arnóri Ísfjörð stórveiðimanni sem hafði verið við veiðar í Landadalsá og gengið vonum framar. Þetta hafði hann að segja... emil@lax-a.is
Lesa meiraLangadalsá að taka við sér eftir þurrka - Talsvert af laxi í ánni
Það var kampakátur veiðimaður hinum megin á símalínunni hjá mér í morgun þegar ég var að ath með gang mála vestur í djúpi. Hann hafði verið ásamt félögum í 2 daga við veiðar og gengið svona líka ljómandi vel. Alls lönduðu þeir 22 löxum og misstu þónokkra, 10 af þessum löxum voru 10 pund eða stærri!! Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraBjart yfir bleikjueldi almennt - Mikill markaður til staðar
Fyrsta slátrun hjá nýju bleikjueldis fyrirtæki á Tálknafirði er hafin. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú en stækkun eldisins er í bígerð. Það er fyrirtækið Bæjarvík sem stendur að bleikjueldinu. Eldið byggir á gömlum grunni, í kerjunum hefur áður verið eldi sem ekki stóð undir sér.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Haust Tilboð Hótel Rangá!!
Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl
Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu
Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?
Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is
