Myndir frá Noregi - Mikið af stórlaxi á land
Það voru vinir okkar hér frá lax-á sem voru við veiðar í Noregi nú fyrir skemmstu. Þeir veiddu bæði í Gaula og í Orkla, þar á meðal hinu frægu Varghollen flúðir, en þær eru einn sá staður í heimi þar sem hvað best er að athafna sig með fluguna, þar er mikið af stórlaxi á ferðinni og fengu þeir félagar 2 30 punda laxa á aðeins einum degi, ekki slæm veiði það. Hér má sjá fallegar myndir frá svæðinu..Axelo axelo@lax-a.is
Metin falla í Ponoi og Acha – Miklar göngur undanfarna daga
Það er búinn að vera gríðarlega góð veiði síðustu 2 vikur á veiðisvæði okkar í Ponoi. 2 veiðimenn eru búnir að vera 2 vikur í röð í Ponoi og fá þessa líka enga smá veiði. Annar fékk í heildina 194 laxa, sem gerir meðalveiði upp á 14 laxa á dag og hinn fék 170 laxa sem gerir meðalveiði uppá 12 laxa á dag, engin smá veiði þar á ferð. Aldrei áður hefur náðst svona góð veiði þar á bæ og því um met að ræða..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira