Vikan sem leið í Rio Grande í Argentínu
Það var mjög góð veiði fyrripart vikunnar eins og ég greindi frá hér að ofan en svo kom smá dýfa og veiðin datt niður. Það voru erfið veðurskilyrði en veiðimenn voru ekkert að láta það á sig fá og endaði vikan í 115 birtingum í það heila. Að sögn staðarhaldara þá hefur ekki sést eins mikið af stórum fiski í ánni lengi en mikið af aflanum fór yfir 20 pund.. axelo@lax-a.is
Helgin var góð á Villa Maria svæðinu í Rio Grande - Argentínu
Árni Bald er við veiðar núna í Argentínu ásamt félögum, en þeir eru að veiða í Villa Maria í Rio Grande. Það hefur verið vindasamt eins og oft vill vera þar. En þrátt fyrir það er veiðin stórkostleg, stærsti fiskur á land um helgina var 33 pund og þeir voru að landa svona um 30 að meðaltali á dag. Fáir fiskar voru undir 20 pundum. Við munum fá glóðvolgar fréttir á næstu dögum með nýjum myndum og birtum við þær um leið og þær berast.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Matreiðslumenn - Kokkar
Lax-á leitar að traustu, duglegu og samviskusamlegu fólki til að sinna matreiðslu í eftirfarandi veiðihúsum næsta sumar: Eystri Rangá, Ytri Rangá, Hólahvarf við Blöndu og Tjarnarbrekku við Víðidalsá
Lesa meira
Veiðimaður í Skotlandi á séns á fullu húsi
Okkur voru að berast þau tíðindi að Veiðimaður nokkur að nafni Jim Fisher, ætti mjög góðan möguleika á fullu húsi eða þrennunni stóru, en hann var við veiðar í opnuninni á laxveiðiánum Dee og Tay og tókst honum að landa fyrsta laxi tímabilsins í hvorri á fyrir sig. Það er kannski ekki svo merkilegt en fjölmiðlar í Skotlandi tala vart um annað því hann er að fara í opnuninna á Spey og hann dró þar besta svæðið til að byrja á. Það þýðir að hann á raunhæfa möguleika á að ná fyrsta laxinum á land í 3 helstu laxveiðiám Skotlands.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Agnið hefur aldrei verið flottara en nú
Söluvefur okkar www.agn.is hefur sjaldan eða aldrei verið eins flottur eins og nú uppá síðkastið. Flest öll veiðisvæði okkar eru nú þar til boða, mörg tilboð í gangi, skemmtilegir leikir og fróðleg myndbönd. Einnig eru í gangi verðlaunaleikir með annsi áhugaverðum verðlaunum.. axelo@lax-.is
Lesa meiraVerkamenn fundu loðfílsbein við vinnu sína í Kaliforníu
Verkamenn í San Diego í Kalíforníu fundu á dögunum leifar mammúts, eða loðfíls, við Thomas Jefferson lögfræðiskólann þar í borg. Tegundin er talin hafa dáið út fyrir um tíu þúsund árum síðan, en þessi tiltekni fíll er talinn hafa lifað fyrir nálægt hálfri milljón ára síðan.. axelo@lax-a.is
Lesa meira