Fréttasafn

Pira Lodge nóv 07 15

30.1.2009 : Golden Dorado –“Hinn gyllti stríðsmaður” Oftast nefndur Tígrisdýr vatnanna..

Heimkynni Dorado fisksins eru á landamæri Argenetínu og Paraguy eða á Ibera fenjasvæðunum sem telst einstakt á heimsvísu og þekur um 300.000 hektara svæði. Veitt er á langar straumflugur 15-20 cm langar og taumurinn er sér styrktur með stálþræði því tennur Dorado eru einstaklega beittar. Flugurnar eru bústnari en við eigum að venjast en Dorado er sólgin í þær og hendist á þær með offorsi.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Tierra Fuego 2

29.1.2009 : Irigoyen í Argentínu - Lítil og vel falinn á fyrir veiðimenn

Laxá býður upp á ferðir í þessa geggjuðu veiðiá á Tierra Del Fuego Landsvæðinu. Hér erum við að ræða Sjóbirtingsveiðiá sem hefur allt sem þarf.  Veiðin er góð, fiskar frá 5-30 pund, aðeins 4-6 stangir, menn sjá um sig sjálfir og þar af leiðandi er kostnaðurinn minni.  Hún er fjarri siðmenningu sem gerir það  annsi spennandi að veiða hana. Kíktu á greininna hér að neðan og settu þig svo strax í samband við okkur hér á skrifstofunni.. axelo@lax-a.is  

Lesa meira
 

29.1.2009 : Svona er Argentína - Uppfærðar upplýsingar á heimasíðunni

Við höfum tekið allar upplýsingar um Argentínu og uppfært þær með nýjum myndum og Texta. Við bjóðum uppá bestu mögulegu veiðisvæðin þar, hvort heldur í stangveiði eða skotveiði. Við hvetjum áhugasama um að skoða þessar upplýsingar vel og setja sig svo í samband við okkur hér á skrifstofunni fyrir frekari upplýsingar. Það er hrein unun að ferðast þangað og veiða og mælir undirritaður tvímælalaust með því eftir áralanga reynslu á að ferðast þangað.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

23.1.2009 : Svona á að halda á fisk fyrir myndavél

Það hefur oft verið talað um það hér heima á klakanum hvernig best sé að halda á fisk til að ná rétta mómentinu. Sumir vilja meina að ef rétt sé haldið á fisknum þá sýnist hann stærri.! Það er alveg örugglega rétt og ég get alveg kvittað á það, skuldlaust en hér að neðan getiði séð hinar ýmsu pósur frá heimamönnum í Argentínu sem voru við veiðar í Rio Grande í þessari viku. Nauðsynlegt er að hafa gott samræmi á fisk, veiðimann og umhverfi ef menn vilja ná "the shot".. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

20.1.2009 : Hvernig fara talningar fram á Hreindýrum – Heilmikill fróðleikur hér að neðan

Margir veiðimenn hafa eflaust oft velt því fyrir sér hvernig talningar á Hreindýrum fara fram. Það er gríðarlega mikill fjöldi dýra á víð og dreif á stærðarinnar landsvæði og því senilega erfitt að að fylgjast nákvæmlega með talningunum. Einnig er mikil hreyfing á hópunum um svæðin.  Hér að neðan er allur sannleikurinn um það hvernig þessar talningar fara fram, gröf og myndir.. axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
arnibfish4

20.1.2009 : Árni Bald á veiðum í Afríku – Núna í Angóla

Árni fór um miðja síðustu viku og hélt áleiðist til veiða í Angóla sem er smáríki í Afríku. Þar ætlar hann sér að eltast við risa Tarpoona.  Þeir allra stærstu verða hátt í 130 kg en meðalvigtin er um 100kg.  Það er ábyggilega ekki leiðinlegt að lenda í baráttu við slíkar ófreskjur.  Angóla verður einn af okkar nýju áfangastöðum á árinu 2009 og því verður gaman að fylgjast með þegar hann kemur aftur heim með fulla myndavél af grípandi efni ásamt sögum.. fylgist vel með á næstu vikum.. axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
jan 09

14.1.2009 : Fréttir frá Rio Grande – Villa Maria vikuna 2-9 Janúar

Það voru ekki nema 2 stangir við veiðar á þessum magnaða tíma í Rio Grande, en nota bene, með 29 fiska og enga smá fiska. Stærsti fiskurinn var 27 pund sem er enginn smá smíði. Þetta er glæsileg veiði að sögn staðarhaldarans en hann sendi okkur þessar fréttir. Hann tók það einnig fram að það væri mikið af fiski að ganga í ánna á hverjum degi, fallegur og feitur fiskur.. axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Axel jan 09

7.1.2009 : Rio Grande - Villa Maria - Nýjar fréttir og geggjaðar myndir

Eins og all flestir veiðimenn vita að þá er veiðitímabilið hafið í Argentínu. Aðal targetið þessa dagana er nýgenginn risa sjóbirtingur og það er nóg af honum þetta árið. Ólíkt byrjuninni í fyrra þá er nóg af vatni svo auðvelt er fyrir fiskinn að komast sinnar leiðar. Veiðimenn í Villa Maria eru að fá stórkostlega veiði eins og myndirnar hér að neðan sýna.. axelo@lax-a.is   

Lesa meira
 
Yok12

5.1.2009 : Lausir dagar í Kola 2009

Hér má sjá hvaða dagar eru lausir á komandi tímabili í Kola, margt er um góða daga svo nú er um að gera að setja sig í samband sem fyrst og bóka ferð. Þeir sem hafa farið þangað undanfarin ár mæla sterklega með þessari stórlaxa paradís í Rússlandi..       axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Andreas102

5.1.2009 : Noregur er kominn á kortið - Allar upplýsingar hér á síðunni hafa verið uppfærðar

Laxveiðin í Noregi er á hraðri uppleið og undanfarin 3 ár hafa verið framar vonum í heimtum á stórlaxi. Netaveiðar hafa verið aflagðar Í Þrándheimafirði og það er að skila sér til veiðimanna sem þar stunda sínar veiðar. Frábær aðstaða er til staðar, góð veiðihús og nú er Lax-á kominn með nokkur af skemtilegustu veiðisvæðunum á sín snæri. Kíkið á Noreg hér til hliðar og fáið allar nýjustu upplýsingarnar beint í æð..    axelo@lax-a.is

Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arnor_isfjord_95cm1

31.8.2010 : Nokkrum stórum landað í Langadalsá

Við vorum að fá bréf frá Arnóri Ísfjörð stórveiðimanni sem hafði verið við veiðar í Landadalsá og gengið vonum framar. Þetta hafði hann að segja... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Langadalsa_2008_(8)

20.8.2010 : Langadalsá að taka við sér eftir þurrka - Talsvert af laxi í ánni

Það var kampakátur veiðimaður hinum megin á símalínunni hjá mér í morgun þegar ég var að ath með gang mála vestur í djúpi. Hann hafði verið ásamt félögum í 2 daga við veiðar og gengið svona líka ljómandi vel. Alls lönduðu þeir 22 löxum og misstu þónokkra, 10 af þessum löxum voru 10 pund eða stærri!! Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
IMGP1505

19.8.2010 : Bjart yfir bleikjueldi almennt - Mikill markaður til staðar

Fyrsta slátrun hjá nýju bleikjueldis fyrirtæki á Tálknafirði er hafin. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú en stækkun eldisins er í bígerð. Það er fyrirtækið Bæjarvík sem stendur að bleikjueldinu. Eldið byggir á gömlum grunni, í kerjunum hefur áður verið eldi sem ekki stóð undir sér.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Ranga Ytri151

19.8.2010 : Haust Tilboð Hótel Rangá!!

Superior (standard) eins manns kr. 13.900.- Superior (standard) tveggja manna kr. 8.900.- á mann (kr. 17.800.- fyrir tvo) Morgunverðarhlaðborð er innfalið Kvöldverður (half board - 3 rétta) kr. 6.500.- á mann Hádegis-/kvöldverðir (full board) kr. 8.900.- á mann Lesa meira
 
Makrill

29.7.2010 : Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl

Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskvi

29.7.2010 : Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu

Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Dadyr

28.7.2010 : Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?

Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Tung601

28.7.2010 : Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum

Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna.  Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi.  Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar.  Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Selur

28.7.2010 : Selatalning í Húnaflóa - Aukning á milli ára

Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. Alls tóku 30 manns þátt í talningunni, þar af 25 sjálfboðaliðar. Flestir fóru fótgangandi en einhverjir fóru ríðandi. Auk þess voru nokkrir um borð í selaskoðunarbátnum Brimli en þeir töldu seli við innanverðan Miðfjörð..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Nils 9

8.7.2010 : Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!

Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

8.7.2010 : Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax

Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land. Um er að ræða fiskeldisstöðina Viking Fjord en laxarnir sluppu úr kvíum sínum þegar verið var að leggja rör við hlið þeirra. Svo óheppilega vildi til að við þá vinnu rifnuðu netin í kvíunum og laxahjörðin slapp út í fjörðinn sem þær eru staðsettar í..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Hreindýr

15.6.2010 : Slegist um Hreindýr á Alþingi - Nýtt námskeið fyrir leiðsögumenn

Svandís Svavarsdóttir umhverfis ráðherra segir það vilja sinn að haldið verði námskeið fyrir hreindýraleiðsögumenn vorið 2011. Þá verða liðin tíu ár frá síðasta námskeiði. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði ráðherra um námskeiðshaldið á Alþingi í dag. Námskeiðið er haldið á vegum Umhverfisstofnunar sem frá 2001 hefur ekki talið þörf fyrir það..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Falki

15.6.2010 : Gallar á reglugerð? Of algengt að menn skjóti Fálka og Erni

Ríflega fimmti hver örn og fjórði hver fálki sem fundist hafa dauðir hér á landi hafa verið skotnir samkvæmt rannsókn Náttúrufræðistofnunar. Ernir og fálkar eru á válista og algjörlega friðaðir, örninn frá 1914 og fálkinn frá 1940. Stofnunin hefur rannsakað hræ friðaðra fugla sem fundist hafa á undanförnum árum. Löggjöf um varðveislu og uppstoppun friðaðra fugla og verslun með þá sé gölluð og því erfitt að koma böndum á þessa ólöglegu iðju..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rjúpa

14.6.2010 : Sviptingar á milli landshluta á Rjúpnastofninum

Rjúpnastofninn stækkar bæði og minnkar, eftir því hvar á landinu er talið. Samkvæmt talningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpnastofninum má skipta landinu upp í tvo hluta. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi er aukning í stofninum frá fyrra ári um 29% að meðaltali í samandregnum tölum.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Skotid_a_skarf

14.6.2010 : Fjölgun Dílaskarfs – Vísbending um gott ástand átu

Dílaskörfum hér á landi hefur fjölgað samkvæmt nýlokinni árlegri talningu. Þegar reglubundnar talningar hófust árið 1994 var stofninn á niðurleið, en frá 1995 hefur honum fjölgað að meðaltali um nálægt 4% á hverju ári og eru hreiðrin nú alls 5250.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
joi_namibia

9.6.2010 : Í Afríku með Lax-á -Voru á Gull gripaveiðum á Rauðusöndum s.l. vor

Nokkrir íslenskir skotveiðimenn fóru til veiða í Rooisand í Namibíu nú í vor. Rooisand-búgarðurinn er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgini Windhoek. Rooissand þýðir rauðisandur og dregur staðurinn nafn af rauðum eyðimerkursandi sem fauk á þetta svæði fyrir þúsundum ára frá Kalahari eyðimörkinni. Landareignin er um 12.000 hektarar og er hún við enda fjallgarðs nálægt fjallinu Gamsberg sem er 2.347 metra hátt og því nokkuð hærra en Hvannadalshnjúkur. Namib eyðimörkin liggur að landinu. Rooisand búgarðurinn er eins og eyja í þessu fjöllótta og hrjóstruga landi sem er nánast eins og eyðimörk.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

9.6.2010 : Júní veiðin byrjar af krafti í Litluá fyrir norðan

Veiðin í júní byrjar af krafti í Litluá. Steingrímur Friðriksson sem hefur verið iðinn veiðimaður í Litluá var í vikunni tvo dagparta við veiðar í ánni og fékk hann 10 fiska hvorn daginn. Setti hann í góða bleikjugöngu við klöppina á svæði 4 og tók þar nokkrar fallegar bleikjur í röð og þar af fjórar um 62 cm langar. Sagan í Litluá segir að júnímánuður er yfirleitt mjög góður og mikið um sjóbirting. Hér á árum áður þegar veiði hófst ekki fyrr en í byrjun júní, þá var ætíð mjög mikil veiði á þessum tíma.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Heklubyggd

7.6.2010 : Nýtt veiðihús hjá Lax-á

Lax-á hefur tekið í notkun nýtt og glæsilegt veiðihús í Heklubyggð en húsið er um 25km frá Hellu og 110km frá Reykjavík. Húsið er hægt að nota til dæmis með veiði í Galtalæk eða Ytri Rangá efra svæði,  en húsið fylgir ekki með veiðileyfum. Það þarf að panta það sér.

Lesa meira
 
2005,_largest_salmon_of_the_season_103_cm_web

4.6.2010 : Blanda 10. til 12. júlí

Ágætu veiðimenn, í tilefni Sjómannadagsins viljum við bjóða tvær stangir í Blöndu svæði 1 10. til 12. júlí (hád - hád) Lesa meira
 
Gudrun 4

26.5.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Spurning hvort þetta var heppni..?

Það hefur lítið farið fyrir veiðikonum hér hjá mér í spjallinu undanfarið. þær eru eflaust jafn margar og karlpeningurinn sem stunda veiðar og Guðrún S. Ólafsdóttir er ein af þeim. Hún er hörkuveiðimaður, bæði í stangveiði og skotveiði. Hér að neðan kemur hún inná maríulaxinn, Hreindýraveiðar og snilldar eldamennsku en einnig commentar hún á hvort kvennahollinn skilji eftir sig sömu sögurnar og karlahollinn..spennandi lesning.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarf 16 - 203 Kópavogur | s: 557 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar