Fréttasafn

axelo_saudnaut_1

28.10.2008 : Á veiðum í Grænlandi - Sauðnaut er málið

Ég fór til Grænlands í sumar með veiðimönnum frá Rússlandi og lenti í því feyki skemmtilega ævintýri að fá að skjóta Sauðnaut. Það er örlítið öðruvísi að halda til veiða í grænlandi, lundin önnur í innfæddum en þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta alltaf um sama hlutinn..bráðina.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Jack_White_med_22_punda

24.10.2008 : Viltu komast í alvöru veiði sem fyrst? kýldu á Vorveiði í Blöndu - sv 1

Ef þú ert kominn á vetrarbömmer af því að laxveiðitímabilið er búið, getur ekki beðið eftir að það hefjist að nýju og ert farinn að telja niður dagana strax, þá er ekki úr vegi að bóka núna í Vorveiðina í Blöndu, hver boltafiskurinn á fætur öðrum..alvöru tækifæri hér á ferð til að slaka á spenningnum í vetur.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
2008 opnun stebbi á fludunum

24.10.2008 : Ertu búinn að bóka í Ytri Rangá fyrir 2009

Eins og flestir veiðimenn sem lesa þessa síðu hjá okkur vita þá var gríðarleg eftirspurn eftir veiðileyfum í Ytri Rangá síðasta sumar. Það var alveg frábær veiði í gegnum allt sumarið og hingað hringdu menn í gríð og erg að reyna að fá leyfi en vegna vinsælda komu þeir að tómum kofanum.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
lc2

15.10.2008 : Dee heldur striki – 30 punda lax á land í gær

Lokavika tímabilsins er nú í gangi í Dee og það verður nú bara að segjast að það er fínn töggur í henni, þrátt fyrir að vera kominn svona langt inn í haustið. Fyrstu tveir dagarnir í þessari viku eru búnir að gefa hátt í hundrað laxa, þar af eru 18 af okkar svæði LCrathes og W Durris en Árni var þar í 2 daga í síðustu viku og fékk 40 laxa..! axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
DSC00727

15.10.2008 : Rússland – svona var áin Kola hjá Lax-á í sumar

Kola áin sló ekki slöku við rekar en fyrri daginn, mikill fjöldi Íslendinga fóru á okkar vegum og fengu sannkallaða draumaveiði. Besta vikan gaf 512 laxa en það var um miðjan Júlí. Heildarveiðin var um 2600 laxar á þeim 10 vikum sem við vorum með veiðimenn þar, stöngin var að gefa frá 30 – 60 löxum á land á viku..ekki slæmt það.. axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Acha

15.10.2008 : Rússland - Svona var áin “Ponoi”hjá Lax-á í sumar

Enn eitt árið var Ponoi áin á flugi og í sannkölluðu stuði með veiðimönnum, hvorki meira né minna en 2400 laxar komu á land með rúmlega 40% af aflanum sem 2ja ára fiskur, þvílík aflabrögð. Ponoi áin er ásinn í þinni ermi ef þú vilt veðja á örugga veiði.. axelo@lax-a.is  

Lesa meira

 
DSC00075

13.10.2008 : Veitt með vinum frá Kalla Lú - Ný sería á leiðinni

Nú í sumar er Kalli Lú ásamt gengi búinn að vera á fleygiferð um landið að mynda veiðstaði sem aldrei fyrr. Þættirnir verða á sínum stað á stöð2sport í vetur og verður spennandi að fylgjast með hvernig tekst til hjá honum en núna var síðasta sería að koma í verslanir á höfuðborgarsvæðinu.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Steffen_releasing_a_salmon_-_web

13.10.2008 : Lax-á býr til frábærar DVD myndir – Rússland og Ísland á meðal tökustaða

Nú í sumar var tökulið á vegum Hunters video hér á Íslandi í samstarfi við Lax-á og var markmiðið að taka upp fræðandi myndefni um nokkra af þeim áfangastöðum sem Lax-á er að bjóða uppá. Á meðal tökustaða voru Umba og Ponoi í Rússlandi sem og Eystri Rangá og Hvannadalsá svo einhver dæmi séu tekin.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
dee209

10.10.2008 : Dee á leið í vetrardvala - endar með klassaveiði

Nú er síðasta vikan í gangi í Skosku veiðiperlunni Dee en tímabilið í ár hefur verið örlítið lengra en undanfarin ár vegna tilrauna hjá heimamönnum. Eftir 4ra daga veiði hafa komið 167 laxar á land, sá stærsti 25 pund. Á okkar svæðum L Crathes & W Durris hafa komið 29 laxar á land sem er alveg hreint frábær veiði.. axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
DEE

7.10.2008 : Enn er allt á fullu í Dee

Það er alveg hreint magnað hvað veiðin í Dee í ár er búinn að vera góð. Síðasta vika var að gefa um 250 fiska, stóra og fína. Nú í morgun talaði ég við félaga minn sem er að veiða þar og bað hann um fréttir, það stóð ekki á því frekar en fyrri daginn enda er hann Dani og þeim leiðist ekki þegar vel gengur.. axelo@lax-a.is

Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

bigfish

31.5.2013 : Heimsins stærsti lax

Þann 17. Maí, 1985 landaði Les Anderson frá Soldotna laxi sem sló öll skráð heimsmet en hann var 97 pund og veiddur í Kenai ánni í Alaska. Lesa meira
 
Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar