Veiðifréttir úr Dee
Veðrabreytingar vísa á aflabrögð við Dee
Búast má við minnkandi vatni á næstu dögum, kólnandi veðri með hagléli, snjókomu og næturfrosti. Nokkrir risar hafa sést á svamli, stærstu fiskarnir 24pund. Mikil eftirspurn er í skosku perluna þessa dagana og veiðimenn almennt í skýjunum.
Lesa meira“Vá” segja veiðimenn við Dee
Síðasta vika í Dee var hreint út sagt frábær en veiðin skilaði sér yfir 100 laxa múrinn, margir hverjir þvílíkir jaxlar, 17p, 21p og sá stærsti 23pund. "Sunray Shadow” gerði allt hreinlega vitlaust með eggjandi hreyfingum sínum á yfirborðinu veiðimönnum til mikillar lukku..
Lesa meiraVerða draumar að veruleika við Dee?
Ef Dee væri ekki veiða - sleppa á, þá væru menn með aðgerðarkvíða alla daga, svo stórir og margir fiskar eru að veiðast þar þessa daganna. Í gær var heildarveiðin 18 fiskar, sá stærsti var 16 pund, hörkuveiði það!
Lesa meiraVeiðimenn Skála fyrir Dee
Annan daginn í röð er stærsti fiskur dagsins 18 pund, dagurinn endaði í 14 löxum og er greinilegt að það er allt að fara af stað við Dee. Það er alveg á hreinu að menn skála vel fyrir aflabrögðum þessa dagana og ekki loku fyrir það skotið að glasaklingrið heyrist yfir hafið.
18 punda ástæða til að fara til Dee
Það geyslaði heldur betur af veiðimönnum í Dee eftir veiði gærdagsins, enda ekki að ástæðulausu. Heildarveiðin var 15 laxar og sá stærsti 18pund...18pund. Það virðist vera mikið af stórum fiski komið í ánna og eru veiðimenn greinilega að njóta góðs af því.
Lesa meira