Veiðitímabilið er hafið í Argentínu – Hér eru nýjustu fréttirnar
Já, það er ótrúlegt en satt en veiðitímabilið er farið af stað í Argentínu. Líkt og undanfarin ár er byrjunin góð og staðarhaldarar ánægðir og bjartsýnir á tímabilið. Veðrið er ennþá að losa sig við vetrar haminn en það er frekar kalt núna og rignir, svona týpískt íslenskt haustveður. Stærsti fiskurinn í gær var hvorki meira né minna en 18 pund, takk fyrir, og hann lét svo sannarlega finna fyrir sér á.. axelo@lax-a.is
Grænland er komið á kortið - Allar upplýsingar hér á síðunni hafa verið uppfærðar
Það var aldeilis frábært veiðisumar hjá okkar viðskiptavinum í Grænlandi á Hreindýr, Sauðanaut og bleikju, sl tímabil. Allir fengu sinn feng, frábæra þjónustu og upplifðu ógleymanlegar stundir í þessu náttúru fyrirbæri sem er svo nálægt okkur. Við erum reynslunni ríkari, vorum með okkar fólk í öllum ferðunum og getum því ófeiminn mælt með ferðum til Grænlands sem og þeirri þjónustu sem við bjóðum uppá þar.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Komdu að veiða Sjóbleikju á Grænlandi með Lax-á
Síðsumars bjóðum við stangaveiðimönnum uppá sjóbleikjuveiði í nágrenni Qaqartoq á Suður Grænlandi. Þetta er kræfur veiðiskapur, menn fara langar leiðir, jafnvel klukkustundum saman á hraðbátum, síðan taka tveir jafnfljótir við og enn hlaðast upp klukkustundirnar. En á endanum er þetta allt þess virði og vel það, því að í fjarlægum eyðifjörðum og dölum renna yndislegar ár til sjávar. Þær eru til að heita nánast ósnortnar og þær eru gersamlega yfirfullar af stórri sjóbleikju!.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Skotveiðin hefur verið uppfærð hér á heimasíðunni hjá okkur
Við erum að vinna í því þessa dagana að uppfæra allar upplýsingar sem birtast hér á vefnum hjá okkur. Fyrsti liðurinn í því var skotveiðihlutinn, nýjar myndir, fróðlegur texti og allt það nýjasta sem við bjóðum uppá í skotveiði á þessu og næsta tímabili, dustaðu rikið af hólkinum og gerðu þig klárann, við bjóðum aðeins upp á það besta.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Áhugaverðar upplýsingar um friðun á Blesgæs
Blesgæsarstofninn sem hefur viðdvöl á Íslandi á fartíma er fáliðaður og verpir mjög dreift á Vesturströnd Grænlands. Stofninn er því kenndur við Grænland. Á fáum árum hefur orðið hrun í stofninum og er orsök þess slakur varpárangur, sem veldur því að nýliðun er ekki nægileg til að standa undir afföllum vegna skotveiða.. axelo@lax-a.is
Veiði á Hreindýrum 2008 gekk mjög vel
Aðeins vantaði að skjóta 15 dýr af gefnum hreindýraveiðikvóta árið 2008. Alls veiddust 1318 dýr af þeim 1333 sem gefið var leyfi fyrir að veiða. Veiðitímabilið stóð yfir í 63 daga og mest veitt á svæðum 1 og 2.. axelo@lax-a.is
Ráðgátan um það hvernig laxinn ratar heim
Ein af ráðgátum náttúrunnar hefur verið hvernig laxinn ratar aftur til upprunans, ef svo mætti segja. Nú telja vísindamenn við Háskóla Norður Karólínuríkis í Bandaríkjunum að þeir hafi sannferðuga tilgátu um svarið. Þeir telja að laxinn noti segulsvið jarðar til að rata.. axelo@lax-a.is
300 kg af reyktum laxi í forrétt - hvar annarsstaðar en í Dubai
Fyrr í vikunni opnaði eitt það svakalegasta hótel sem finna má á jarðkringlunni í Dubai. Hótelið sem sést meðal annars frá tunglinu, er byggt á uppfyllingu í sjónum og lítur út eins og Pálmatré séð úr lofti. Á boðstólum í opnuninni var m.a. 4000 stk ostrur, 5000 sushi bitar, 300 kg af reyktum laxi svo eitthvað sé nefnt.. axelo@lax-a.is
Stór styrkur frá Evrópu til að rannsaka laxferðir í sjó
Veiðimálastofnun er þátttakandi í stóru rannsóknaverkefni (Salsea-Merge) sem lítur að rannsóknum á laxi í sjó. Í verkefninu taka þátt 20 stofnanir frá 11 löndum. Verkefnið er margþætt og tekur bæði til vistfræði og erfðafræði lax. Farið er í rannsóknaferðir á skipum út á sjó þar sem lax er rannsakaður.. axelo@lax-a.is
Vantar þig veiðiferð í Ágúst - Hallá kemur sterk inn
Ef þú ert á höttunum eftir góðri fjölskyldu veiðiá þá er Hallá skemmtileg tilbreyting. Hallá er lítil og viðkvæm dragá um 16km löng, en sjálft veiðisvæðið er rúmir 10km. Áin hefur verið friðuð undanfarin ár en 2006 var opnað á hana aftur. Öll umgengni við Hallá er þægileg og mjög notalegt veiðihús fylgir með.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraViltu vera tengdur - kíktu daglega á www.agn.is
Hin geysivinsæla vefsíða www.agn.is er kominn á flug undir styrkri stjórn Freys Guðmundssonar ritstjóra. Mun hann í vetur koma með ýmsan fróðleik tengdan veiðisvæðum okkar hér hjá Lax-á sem og annarra uppákoma. Hver man ekki eftir leikjunum nú í sumar eins og hver er maðurinn? en sá leikur fer brátt í gang.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Eitthvað til að svala veiðiþorstann – kíktu á þetta
Það er alltaf gott að hafa eitthvað fyrir stafni þegar veturinn gengur í garð. Golfarar æfa sveifluna sína og púttin innanhús til að mæta klárir á völlin þegar snjóa leysir, Fluguhnýtarar hópast saman, fylla á boxin sín og væntanlega skiptast á veiðisögum. Oft finnst mér það þó vera þannig að menn mæti annsi ryðgaðir á bakkana þegar fluguköst eru annars vegar.. axelo@lax-a.is
Kola skaginn í Rússlandi - Kaldur vetur, hlý sumur
Hefur þú fengið þá tilfinningu að sólin muni ekki rísa ofar jörðinni á ný? Eða þá að nóttin hafi gleymt að koma.! Á hverjum vetri, í meira en 2 mánuði er lífið á Kola skaganum frekar erfitt en þá er eina ljósið sem þar sést, birta og endurskin frá Norðurljósunum.. axelo@lax-a.is
Lausir dagar í Dee – 2009
Tímabilið sem leið í Dee var eitt það besta í manna minnum. Mjög góð veiði var allt til síðasta dags í Octóber, eitthvað sem kom veiðimönnum töluvert á óvart. Þessi skemmtilega á skellti flestum frænkum sínum í Skotlandi ref fyrir rass með góðri veiði sem er nú strax farið að endurspegla eftirspurn veiðileyfa.. axelo@lax-a.is
Falið leyndarmál í Soginu sem heitir Tannastaðatangi
Sumarið sem leið var stórfínt á þessu skemmtilega veiðisvæði. Svæði sem tilvalið er fyrir litla hópa eða fjölskyldur sem vilja fara í skemmtilega veiði nálægt höfuðborginni. Þar er fínasta veiðivon og alveg má búast við að stöngin bogni vel í átökum við Laxfiska og hina fornfrægu stórbleikju sem Sogið er svo frægt fyrir.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Það getur verið ævintýralegur aflinn á Vatnasvæði Lýsu
Vatnasvæði Lýsu býður uppá mikinn fjölbreytileika þegar kemur að veiði því að þar má veiða Lax, Sjóbirting, staðbundinn urriða, bleikju, sjóbleikju og jafnvel ál. Veiðisvæðið hentar vel fyrir fjölskyldur þar sem það er auðvelt yfirferðar og skemmtilegt. Vatnasvæðið samanstendur af fjórum vötnum og ám sem renna á milli vatnanna. Það má með sanni segja að menn fái allt fyrir peninginn á Vatnasvæði Lýsu.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraGaltalækur - þar sem tröllvaxinn uriðinn leynist
Það hefur löngum þótt gaman að veiða urriða og eru þeir margir veiðimennirnir sem stunda þurrfluguveiðar andstreymis. Það er yfirleitt góð veiðiaðferð og nýtist sérstaklega vel í minni ám eins og t.d. Galtalæk. Þar eru án efa frábærar aðstæður, tært vatn, hægur straumur og hringspeglar sem yfirleitt geyma Tröllvaxna urriða.. axelo@lax-.is
Lesa meira
Allt það nýjasta frá Loop – Bremsan sem laxinn forðast
Á uppboðsvef okkar www.laxaonline.com má bjóða í nýjasta dótið sem Loop hefur uppá að bjóða. T.D. er þar á ferð Nýjasta Opti stöngin og Evotec hjól. Einnig má gera þar góð kaup á veiðileyfum erlendis.. Kíktu á laxaonline í dag og gerðu góð kaup.. axelo@lax-a.is
Flottar myndir frá Kola í sumar - ert þú á leiðinni þangað?
Kola áin er ein skemmtilegasta veiði á sem hægt er að komast í til veiða í heiminum, hún býður uppá ótrúlegan fjölbreytileika og kemur sífellt á óvart. Við verðum sterkari sem aldrei fyrr í Rússlandi á næsta ári. Hættu að hugsa málið, skoðaðu myndirnar hér að neðan, settu þig svo í samband við okkur hér á skrifstofu Lax-á og bókaðu ferð.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Ætlarðu í golf á Spáni í vetur - Hvað með Rauð rjúpu skotveiði?
Lax-á býður uppá skotveiði á Spáni, Í Andaluciu, þar sem Rómverjar gerðu garðinn frægan forðum daga, virkilega fallegt umhverfi, glæsilegt veiðhús með fyrsta flokks þjónustu og aðbúnað. Er ekki tilvalið að sleppa sólarströndinni og verslunarleiðangrinum, skella sér í skotveiði, jóta lífsins og láta heimamenn stjana við sig, andalei..andalei.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Yokanga – Besta veiðiperlan í Rússlandi – laus leyfi
Hraður straumur, erfiðar flúðir, mikið vaðið, löng köst og risa laxar.. Svona má segja frá veiðinni í Yokanga en hún er engu lík. Ár eftir ár fara sömu veiðimennirnir þangað til að fá sinn skammt af adrenalíni, skammt sem fleytir jafnvel elstu mönnum yfir þrautir þessarar kyngimögnuðu ár í Norðri.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Á veiðum í Grænlandi - Sauðnaut er málið
Ég fór til Grænlands í sumar með veiðimönnum frá Rússlandi og lenti í því feyki skemmtilega ævintýri að fá að skjóta Sauðnaut. Það er örlítið öðruvísi að halda til veiða í grænlandi, lundin önnur í innfæddum en þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta alltaf um sama hlutinn..bráðina.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Viltu komast í alvöru veiði sem fyrst? kýldu á Vorveiði í Blöndu - sv 1
Ef þú ert kominn á vetrarbömmer af því að laxveiðitímabilið er búið, getur ekki beðið eftir að það hefjist að nýju og ert farinn að telja niður dagana strax, þá er ekki úr vegi að bóka núna í Vorveiðina í Blöndu, hver boltafiskurinn á fætur öðrum..alvöru tækifæri hér á ferð til að slaka á spenningnum í vetur.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraErtu búinn að bóka í Ytri Rangá fyrir 2009
Eins og flestir veiðimenn sem lesa þessa síðu hjá okkur vita þá var gríðarleg eftirspurn eftir veiðileyfum í Ytri Rangá síðasta sumar. Það var alveg frábær veiði í gegnum allt sumarið og hingað hringdu menn í gríð og erg að reyna að fá leyfi en vegna vinsælda komu þeir að tómum kofanum.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraDee heldur striki – 30 punda lax á land í gær
Lokavika tímabilsins er nú í gangi í Dee og það verður nú bara að segjast að það er fínn töggur í henni, þrátt fyrir að vera kominn svona langt inn í haustið. Fyrstu tveir dagarnir í þessari viku eru búnir að gefa hátt í hundrað laxa, þar af eru 18 af okkar svæði LCrathes og W Durris en Árni var þar í 2 daga í síðustu viku og fékk 40 laxa..! axelo@lax-a.is
Rússland – svona var áin Kola hjá Lax-á í sumar
Kola áin sló ekki slöku við rekar en fyrri daginn, mikill fjöldi Íslendinga fóru á okkar vegum og fengu sannkallaða draumaveiði. Besta vikan gaf 512 laxa en það var um miðjan Júlí. Heildarveiðin var um 2600 laxar á þeim 10 vikum sem við vorum með veiðimenn þar, stöngin var að gefa frá 30 – 60 löxum á land á viku..ekki slæmt það.. axelo@lax-a.is
Rússland - Svona var áin “Ponoi”hjá Lax-á í sumar
Enn eitt árið var Ponoi áin á flugi og í sannkölluðu stuði með veiðimönnum, hvorki meira né minna en 2400 laxar komu á land með rúmlega 40% af aflanum sem 2ja ára fiskur, þvílík aflabrögð. Ponoi áin er ásinn í þinni ermi ef þú vilt veðja á örugga veiði.. axelo@lax-a.is
Veitt með vinum frá Kalla Lú - Ný sería á leiðinni
Nú í sumar er Kalli Lú ásamt gengi búinn að vera á fleygiferð um landið að mynda veiðstaði sem aldrei fyrr. Þættirnir verða á sínum stað á stöð2sport í vetur og verður spennandi að fylgjast með hvernig tekst til hjá honum en núna var síðasta sería að koma í verslanir á höfuðborgarsvæðinu.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraLax-á býr til frábærar DVD myndir – Rússland og Ísland á meðal tökustaða
Nú í sumar var tökulið á vegum Hunters video hér á Íslandi í samstarfi við Lax-á og var markmiðið að taka upp fræðandi myndefni um nokkra af þeim áfangastöðum sem Lax-á er að bjóða uppá. Á meðal tökustaða voru Umba og Ponoi í Rússlandi sem og Eystri Rangá og Hvannadalsá svo einhver dæmi séu tekin.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Dee á leið í vetrardvala - endar með klassaveiði
Nú er síðasta vikan í gangi í Skosku veiðiperlunni Dee en tímabilið í ár hefur verið örlítið lengra en undanfarin ár vegna tilrauna hjá heimamönnum. Eftir 4ra daga veiði hafa komið 167 laxar á land, sá stærsti 25 pund. Á okkar svæðum L Crathes & W Durris hafa komið 29 laxar á land sem er alveg hreint frábær veiði.. axelo@lax-a.is
Enn er allt á fullu í Dee
Það er alveg hreint magnað hvað veiðin í Dee í ár er búinn að vera góð. Síðasta vika var að gefa um 250 fiska, stóra og fína. Nú í morgun talaði ég við félaga minn sem er að veiða þar og bað hann um fréttir, það stóð ekki á því frekar en fyrri daginn enda er hann Dani og þeim leiðist ekki þegar vel gengur.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Laus veiðileyfi í Tungufljót inn á Agn.is
Í ljósi þess að frábær veiði er núna á bökkum miðsvæðis Tungufljóts þá vill ég benda á að nokkrir lausir dagar eru þar á næstunni ásamt því að það hefur sést til laxferða á silungasvæðinu, þú gætir lent í veislu fyrir 3000 kall, flott vatn í ánni og góðir hlutir að gerast á svæðinu, farðu inn á www.agn.is og verslaðu þér laxveiðileyfi.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Ný fisk tegund á Íslandsmiðum
Sjómenn á Suðurnesjabátum hafa undanfarið orðið varir við svokallaðan Stóra-Brama á ( Common bream ) miðunum undan Reykjanesi. Hefur hann verið að slæðast með öðrum fiski á línunni. Þeir sjómenn sem hafa veitt Stóra-Brama segja að þarna sé á ferð sælkerafiskur og þykir hann einna helst minna á túnfisk.. axelo@lax-a.is
210 Löxum landað á DEE í þessari viku.
Það er skemmtilegt að vera við veiðar í Dee - Skotlandi þessa dagana , 210 laxar á land i þessari viku , þar af 26 laxar af okkar svæði Lower Crathes West Durris , stærstu komu á land frá M Drum 26 pundari og af Park komu tröll 28 og 30 pundarar ! Nokkrir dagar eru lausir núna í lok September og í Október ef að einhverjir vilja smella sér í haustgöngurnar sem eru að koma inn af krafti núna á neði svæðin. Árni arnibald@lax-a.is
Lesa meiraFlott veiði í Dee - getspakir starfsmenn Lax-á höfðu rétt fyrir sér
Síðasta vika í Dee var ekki af verri endanum, heildarveiðin fór í 201 lax, á bilinu 7lbs- 22 lbs. Sá stærsti var 22 pund og tók að sögn vel í, hann var silfraður og fallegur. Heildarveiðin í ánni er töluvert fyrir ofan það sem björtustu menn þorðu að vona í vor og gera menn nú miklar væntingar til veiðinnar í octóber. Við eigum einmitt laus leyfi á Wdurris og LCrathes en Árni fór þar í fyrra á þessum tíma og fékk 19 laxa á 2 dögum..Við sögðum það hér í greinum okkar í vor að oft væri samasem merki með góðri vorveiði í Skotlandi og hér heima á Íslandi.. axelo@lax-a.is
Skotveiðimenn – skemmtileg nýjung í Skotlandi
Lax-á býður nú upp á frábæran skotveiðipakka í Skotlandi. Um er að ræða veiðar á hinu stórglæsilega dýri “ Roe Buck”. Veiðarnar fara fram við Aberdeen í aldeilis glæsilegu umhverfi þessa stórbrotna lands. Við verðum með hotel á okkar vegum þar sem veiðimenn og konur geta látið fara vel um sig og notið lífsins og augnabliksins. Það fylgir leiðsögumaður með og viðkomandi veiðimaður fær að skjóta 6 dýr í það heila, nú svo má sameina þetta og laxveiði í Dee. Fyrir áhugasama, endilega hafið samband.. axelo@lax-a.is
Veiðitölur til 28.08.2008
Enn eitt metið að falla í Dee – eigum við að skella okkur
Það var besta vika tímabilsins, vikan sem nú leið í hinni kyngimögnuðu Laxveiðiperlu skota, Dee. Heildarveiðin var 257 laxar, stórlaxar í bland við minni og sá stærsti var um 25 pund. Þetta er svipað og dagsveiðin í Ytri Rangá svo kannski ekkert tiltökumál fyrir okkur Íslendingana en fyrir þá sem þekkja Dee og veiðar í Skotlandi almennt, þá er þetta eitthvað sem menn halda vart vatni yfir. Og svona til að þið útskýra hugsun heimamanna þá er þetta svipað og ef Stóra Laxá í Hreppum myndi skyndilega detta í gang með veiði yfir 80-100 laxa á viku..! axelo@lax-a.is
Lausir dagar Í Rio Grande Fyrir 2009
Hér að neðan sjáiði hvað við eigum laust á næsta ári í Rio Grande. Það er mikil eftirspurn eftir þessum dögum svo það er um að gera að hafa hraðar hendur og bóka strax eftirminnilega ferð til Þessarar perlu Sjóbirtingsins.. axelo@lax-a.is
Nýjustu Veiðitölur !
ertu þú búin að komast í veiði í sumar ?, ég mæli með því að drífa sig núna !
því nú eru laxarnir að taka og veiðin langt um betri núna heldur en á sama tíma í fyrra !
Lesa meira