Í Þorrabyrjun
Vetur gamli lét heldur betur af sér vita um daginn. Frost og snjór. Mínus fimm gráður í morgun og snjóaði í nótt. Snjóað hefur hvern dag og nótt síðan í byrjun síðustu viku.
Fyrsta morgunverk mitt var að ryðja burt snjónum af matborði smáfuglanna. Bæði fóðurpallinum sem festur er á snúrustaur, og blettinum undir.
Pallurinn er ekki nógu stór fyrir allt það fjölmenni fugla, sem kemur í mat hvern morgun, í birtingu.
2007
Nýtt ár. Nr. 2007 eftir okkar tímatali. Milljarðar manna telja allt öðruvísi. Sumir telja alls ekki neitt.
Áramótin voru verri en dæmi eru til. Sprengignírinn var heldur óskemmtilegur. Mengunin fram úr öllu hófi. Enda fór ég ekki útúr húsi. Tíkin og ég sátum hlið við hlið og reyndum að halda jafnvægi sálarinnar stöðugu. Tíkargreyið skalf svolítið þegar djöfulgangurinn var sem verstur, en þar eð sá sem hún treystir best sat og klóraði henni á kollinum, taldi hún öllu óhætt.
Er ekki kominn tími til að endurskoða þetta sprengjufár um hver áramót með allri þeirri mengun og fjáraustri sem fylgir. Svo ekki sé talað um slysin og meislin sem eru orðin árviss.
