Fréttasafn

gjafabreflaxa

29.11.2006 : Kauptu gjafabréfin beint á vefnum

Gjafabréf Lax-á ehf er tilvalin gjöf fyrir veiðimanninn. Hægt er að fá gjafabréf Lax-á ehf á mismunandi verðum hér beint af vefnum.

Gjafabréfin gilda á öll veiðisvæði Lax-á hvort sem um er að ræða silungsveiði og- eða laxveiði jafnt innanland og erlendis.

Lesa meira

 
Blanda_2005_-_web_1

20.11.2006 : Sleppt og uppstoppað.

Margt er skrýtið í henni versu. Nú er svo komið að hégómagjarnir veiðimenn í útlandinu láta “stoppa upp” fiska sem þeir veiddu og slepptu. Ekki er öll vitleysan eins.

Á heimasíðu SVFR las ég grein á dögunum þar sem þetta er tíundað. Sem sagt; Veiðimenn geta látið gera afsteypu úr trefjaplasti, eða þvíumlíku, af stórfiskum sem sleppt var lifandi í ána eftir meðhöndlun á þurru landi, sem lýst er nánar, eins og segir orðrétt.

“Erlendis eru komnir fram “aðilar

Lesa meira

 

16.11.2006 : Skammdegi og flugur

Á þessum tíma árs er stangveiðin óskaplega fjarlæg hér við norðurpólinn.

Langt síðan síðasta veiðiferð stóð sem hæst og enn lengra til þeirrar næstu.

En veiðifíklar reyna að seðja fíknina með ýmsu móti. Lestur bóka um fluguveiði er nokkuð góður, til þeirra nota. Svo og spekúlasjónir og hnýtingar.

Gamlar, marglesnar skruddur eru dregnar fram úr rykföllnum hillum, flestar á enskri tungu, og tekið að glugga í þær, ef hugsast gæti að eitthvað hafi orðið útundan við fyrri lestra.

Lesa meira

 
it

16.11.2006 : Eftir Óveðrið

Ég vaknaði frá fögrum draumi við gríðarlegan veðurdyn.Klukkan var fimm. Ekki kominn fótaferðartími. Dró sængina uppað höku og hugðist sofna aftur í þeirri von að draumurinn héldi áfram. En það var útilokað. Það var eins og allt ætlaði um koll að keyra.

Ég staulaðist á fætur og leit útum eldhúsgluggann í bakgarðinn meðan ég helti köldu kaffi í bolla. Trén í garðinum léku á reiðiskjálfi. Hristust og skókust í verstu hrinunum svo grassvörðurinn umkring

Lesa meira

 

3.11.2006 : Fyrsti nóvember.

Logn og hiti fjögur stig. Veðurstofan spáir hlýnandi veðri næstu daga. Ekki er það amalegt.

Dagarnir styttast óðum. Bráðum komið skammdegi.

En eins og flestir, sem lesið hafa meistara Þórberg, vita, byrjar skammdegið þann 11. nóvember þegar sól er sjö klukkustundir á lofti og endar 3. febrúar, en þá er sól aftur sjö klukkustundir á lofti. Það er 1/3 partur

Lesa meira

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Myndadiskur_2004_023

24.8.2011 : Þriðja hver rjúpa án unga

Þriðja hver rjúpa á Norðausturlandi er án unga og er greinilegt að færri fuglar verða á veiðislóðum í vetur. Fyrirkomulag á rjúpnaveiðinni í vetur hefur ekki verið ákveðið. Niðurstöður árlegrar rjúpnatalningar leiða í ljós að rjúpnastofninn á Norðausturlandi er mun minni en undanfarin ár..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
sk1

22.8.2011 : Gæsaveiðin fer rólega af stað

Skotveiðimenn um land allt fóru af stað á Laugardaginn en þá hófst Gæsaveiðin formlega. Misjafnt gengi var um land allt, allflestir voru þó á eftir Heiðargæsinni en skv veiðivísi var gengið misjafnt. Var það þó helst að frétta að ungfuglinn væri óvenjulega smár og lágt hlutfall af honum í hópunum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

19.8.2011 : Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir.

Lesa meira
 
YtriAegissidufoss

18.8.2011 : Lausar stangir næstu daga

Við eigum spennandi stangir lausar næstu daga og í næstu viku. Veiðin hefur verið að taka við sér í flest öllum ám og Rangárnar að gefa þriðjahvern lax sem veiðist á landinu. Frábært tækifæri til að skreppa í laxveiði. johann@lax-a.is Lesa meira
 
DEE200712

5.8.2011 : Laxveiði í Skotlandi

Við eigum lausar stangir í haust í áni Dee nánar tiltekið á Lower Crathes svæðinu. Laxveiðin í Skotlandi nær hámarki á vorin og á haustin og er því um að ræða frábæran tíma í áni. Veiðin er í rólegra móti um mitt sumar en þrátt fyrir það eru á meðaltali 130 laxar að veiðast á viku í allri áni. Lesa meira
 
Halla_05_HakanSteenlund_200

3.8.2011 : Hross í kringum veiðisvæði Hallá

Veiðimaður sem var í Hallá um verslunarmannahelgina hafði samband við okkur og vildi koma því á framfæri að hestar væri við veiðisvæði í áni. Hestarnir sækjast í saltið á bílunum og geta valdið tjóni a lakki bifreiðarinnar. Gott er að hafa varann á þegar menn leggja bílum við veiðistaði og athuga hvort hross séu á svæðinu.

Lesa meira
 
Grahegri

18.7.2011 : Nýr Íslenskur fuglavísir - Tilvalinn fyrir veiðimenn

Íslenskur fuglavísir er líklega ein þeirra bóka sem íslenskum ferðalöngum finnst ómissandi í sumarfríið. Þessi vinsæla bók er nú komin út í endurbættri útgáfu. Í þessarri nýju útgáfu hafa um fjörutíu fuglategundir bæst við frá fyrri útgáfum og er þetta rit bæði á íslensku og ensku tungumáli..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar