Fréttasafn

it

29.12.2006 : Jólagjafaspjall.

Jóladagsnótt. Allt er hljótt. Menn og dýr sofa, utan ég. Ég vaki og hugsa, og slæ lyklaborðið. Ekki mikið nytjastarf, en betra en gera ekkert. Eins og sagt var forðum,” Betra er illt að gera, en ekki neitt”. Þetta er reyndar ekki mjög gáfulegt. Og þarf ekki að vera það. SMELLIÐ Á LESA MEIRA TIL AÐ FÁ ALLA GREININA.

Lesa meira

 
Tay

19.12.2006 : Þessir stóru!

Fyrir kemur að ég get ekki sofið um nætur. Við því er ekkert að gera annað en taka sér eitthvað fyrir hendur þangað til mann fer að syfja. Þá er ágætt að setjast með skriffæri og skrifa eihverja vitleysu. Það er furðulegt hve slík iðja er svæfandi. Einkum hjá gömlum, sem hugsa hægt. Þetta henti mig um daginn. Þá settist ég við skrifborðið og reyndi að koma reglu á hugsanirnar. Ekki gekk það sérlega vel. En taka verður viljann fyrir verkið.  Ýmislegt sækir á hugann í næturkyrrðinni. Ekkert hljóð truflar. Hverfið er kyrrlátt og umferð ökutækja lítil, á daginn, en engin á þessum tíma sólarhringsins. Ég tók að skoða hinar og þessar heimasíður um hitt og þetta. M. a. þessa.  Þann 12. des s.l. birtist grein á vefsíðu SVFR um laxa sem ekki veiðast, en komast á

prent vegna stærðarinnar

Lesa meira

 

11.12.2006 : Morgunganga

Það var fallegt hér í hverfinu í afturelding í morgun. Tunglið fullt á heiðum himni, hiti mínus tvær gráður og norðan kæla. Sólarupprás roðagyllti austurhimininn.

Tíkin Salka og ég erum á venjulegri morgungöngu. Við förum venjulega af stað rétt fyrir birtingu og erum á stjái hálfan til heilan klukkutíma.

Íbúar hverfisins setja upp jólalýsingu hver af öðrum. Rauðu ljósaseríurnar eru vinsælar um þessar mundir, en sumar eru í öllum litum regnbogans. Ekki veitir af að slá eitthvað á þetta svartnættismyrkur

Lesa meira

 
9-12-2002-6324

5.12.2006 : Skammdegisþankar

Óskaplega er myrkrið svart.

Og rúmar þrjár vikur enn, lækkar sól á lofti. Myrkrið verður lengra með hverjum degi. Birtan þar af leiðandi styttri. Sumum er þessi tími ársins erfiður. Þunglyndi herjar mann-

kind, og dæmi eru um að stundum grípi fólk til örþrifaráða, og geri mistök sem ekki verða leiðrétt.

Þá er gott að hafa

Lesa meira

 
Haukadalsa_07_HakanSteenlun

5.12.2006 : Veiðileyfi í Hvannadalsá komin inn á agn.is

Hvannadalsá rennur í Ísafjarðardjúp samhliða Langadalsá og eiga þær sameiginlegt ósasvæði. Veiðisvæði Hvannadalsár er frekar stutt upp að Stekkjarfossi en áin er mun vatnsmeiri og straumþyngri í samanburði við systur sína Langadalsá. Vænir laxar ganga upp í ána og eru auðþekktir, sverir og kraftalegir. Veiðihúsið er lítið og notalegt og stendur við bakka Hvannadalsár. Það er okkur mikil ánægja að ........ Lesa meira
 
DSC00085

5.12.2006 : Veiðileyfi í Ytri Rangá eru komin inn á agn.is

Enn bætist við veiðileyfaflóruna á agn.is og er nú Ytri rangá komin inn þar einnig þar sem hægt er að kaupa veiðileyfi beint af vefnum.

Á aðalsvæðinu í Ytri rangá er nú hægt að kaupa sér veiðileyfi beint á vefnum á þeim tímum sem ekki er fæðisskylda og er hægt að fá sér stöng einn dag í senn og veiða frá morgni til kvölds. Það hefur verið vinsælt enda er Ytri Rangá í klukkutíma fjarlægð frá höfuðborginni og upplagt að skella sér snemma á fætur og renna fyrir lax og koma heim í kotið um kvöldið með nóg af laxi :-)
Lesa meira
 
gjafabreflaxa

29.11.2006 : Kauptu gjafabréfin beint á vefnum

Gjafabréf Lax-á ehf er tilvalin gjöf fyrir veiðimanninn. Hægt er að fá gjafabréf Lax-á ehf á mismunandi verðum hér beint af vefnum.

Gjafabréfin gilda á öll veiðisvæði Lax-á hvort sem um er að ræða silungsveiði og- eða laxveiði jafnt innanland og erlendis.

Lesa meira

 
Blanda_2005_-_web_1

20.11.2006 : Sleppt og uppstoppað.

Margt er skrýtið í henni versu. Nú er svo komið að hégómagjarnir veiðimenn í útlandinu láta “stoppa upp” fiska sem þeir veiddu og slepptu. Ekki er öll vitleysan eins.

Á heimasíðu SVFR las ég grein á dögunum þar sem þetta er tíundað. Sem sagt; Veiðimenn geta látið gera afsteypu úr trefjaplasti, eða þvíumlíku, af stórfiskum sem sleppt var lifandi í ána eftir meðhöndlun á þurru landi, sem lýst er nánar, eins og segir orðrétt.

“Erlendis eru komnir fram “aðilar

Lesa meira

 

16.11.2006 : Skammdegi og flugur

Á þessum tíma árs er stangveiðin óskaplega fjarlæg hér við norðurpólinn.

Langt síðan síðasta veiðiferð stóð sem hæst og enn lengra til þeirrar næstu.

En veiðifíklar reyna að seðja fíknina með ýmsu móti. Lestur bóka um fluguveiði er nokkuð góður, til þeirra nota. Svo og spekúlasjónir og hnýtingar.

Gamlar, marglesnar skruddur eru dregnar fram úr rykföllnum hillum, flestar á enskri tungu, og tekið að glugga í þær, ef hugsast gæti að eitthvað hafi orðið útundan við fyrri lestra.

Lesa meira

 
it

16.11.2006 : Eftir Óveðrið

Ég vaknaði frá fögrum draumi við gríðarlegan veðurdyn.Klukkan var fimm. Ekki kominn fótaferðartími. Dró sængina uppað höku og hugðist sofna aftur í þeirri von að draumurinn héldi áfram. En það var útilokað. Það var eins og allt ætlaði um koll að keyra.

Ég staulaðist á fætur og leit útum eldhúsgluggann í bakgarðinn meðan ég helti köldu kaffi í bolla. Trén í garðinum léku á reiðiskjálfi. Hristust og skókust í verstu hrinunum svo grassvörðurinn umkring

Lesa meira

 

3.11.2006 : Fyrsti nóvember.

Logn og hiti fjögur stig. Veðurstofan spáir hlýnandi veðri næstu daga. Ekki er það amalegt.

Dagarnir styttast óðum. Bráðum komið skammdegi.

En eins og flestir, sem lesið hafa meistara Þórberg, vita, byrjar skammdegið þann 11. nóvember þegar sól er sjö klukkustundir á lofti og endar 3. febrúar, en þá er sól aftur sjö klukkustundir á lofti. Það er 1/3 partur

Lesa meira

 
hundur

24.10.2006 : Haustþankar.

Fyrsti dagur vetrar. Logn og heiðríkja, frost tvær gráður. Unaðslegt haustveður. Klukkan er gengin í tíu. Ég og tíkin í fyrstu gönguferð dagsins. Tíkareigandinn, María, er lasin svo það lendir á mér að fara með hvolpinn

Lesa meira

 
ER Aug 2005 j

17.8.2006 : Ég hef veitt í meira en fimmtíu ár. Eingöngu stundað fluguveiði síðan 1962.

Alltaf hefur það verið ætlunin að skemmta sér við veiðarnar, sálga veiðinni, ef einhver er og leggja hana í búið og éta að lokum, eða selja, eftir atvikum.

Veiðiskapurinn hefur ekki verið til lífsframfæris, heldur til skemmturnar, þó veiðin hafi stundum verið góð viðbót, og til hátíðabrigða, við daglegt brauð.

Aldrei var það hugleitt að sleppa veiddri bráð, nema aðeins vegna þess að hún var ekki talin æt, eða óseljanleg, vegna smæðar, eða annars sem áfátt var.

Lesa meira

 
Sportveidibl_Forsida

19.7.2006 : Sportveiðiblaðið

Við minnunm á nýja Sportveiðiblaðið sem er komið út þar sem veiðimenn geta lesið sig til im skemmtileg veiðisvæði og skoðað fallegar myndir.

 

Í þessu nýja tölublaði er fullt af fróðleik og skemtiefni eins og einkaviðtal við Bubba Morthens, Umfjöllun um Laxá í Mývatnssveit, Skotveiði, Meðalfellsvatn,  Vatnsdalsá, viðtal við Gísla Ásgeirsson og Jón Þór, Birgitta Haukdal, Laxá í Leirársveit, Skotfélag Reykjavíkur, Norlingafljót, Langá og m.fl.

Lesa meira

 
IMG_0363

28.6.2006 : Mánudagurinn í Kola

Nú er sumarveiðin hafin, við erum kominn í flotlínu, léttan taumu ( 12 - 15 punda) og litlar flugur (8 - 12) og hitch túbur, veiðin er góð en veiðimenn þurfa nú að vera meira varkárir. Íslensku veiðimennirnir fóru út að veiða í gærkvöldi og fengu 5 laxa, sá stærsti var 22 pund, þannig að það komu alls 26 fiskar á land í gær. Tveimur Lesa meira
 
IMG_0327

26.6.2006 : Sunnudagurinn í Kola

Seint í Gærkvöldi Fékk Abe Mathews 4 laxa úr homepool allir á bilinu 10 - 17 pund. Abe fékk svo í morgun 6p og 13p úr junction, Jacqes Druyer landaði 6p og 15p og missti marga úr junction og þar af með'al einn risavaxinn, vel yfir 20p. Óskar og Karl fengu 3 laxa í dag alla 10 punda úr junction og pump. Ari, Halldór, Jón og Árni fengu Lesa meira
 
Kola

26.6.2006 : Föstudagurinn í Kola

Parantelli og Denic Poch fengu 6 laxa í homepool og bear pool í dag, allir á bilinu 6 - 18 pund. Það komu tveir 5p úr Catle pool. Það kom nýtt holl í dag og veiddu Þeir í nokkra tíma, Ari landaði tveim 6p löxum úr junction og missti 5laxa. Halldór landaði Lesa meira
 
Jim_York_Success!

24.6.2006 : Veiðifréttir frá Ponoi

Ég var að hitta Steffen Juhl á flugvellinum í Murmansk, Hópurinn átti frábæra viku í Acha camp í Ponoi, 460 laxar og allir stórir, á bilinu 15 - 19p, nokkrir yfir 20p. Lesa meira
 
IMG_0134

24.6.2006 : Föstudagurinn í Kola

Það var annar heitur og sólríkur dagur hér í Kola í dag. Vauchin fékk tvo laxa, annan úr flúðunum fyrir neðan junction sem vóg 14p, og annan 6p sem kom úr junction pool, Rosatto fékk tvo úr junction sem voru 10p. Patrick fékk líka 10p úr junction. Íslenski hópurinn missti fjóra og landaði einum 9p. Sandy landaði 23pundara frá reindeer beat Lesa meira
 

23.6.2006 : Fimmtudagurinn í Kola

Það var mjög heitt í dag og mikil sól, örugglega eithvað um 25° - 30° og vatnshitinn er eithvað um 15°C, fiskurinn fer minkandi, það virðist vera að stórlaxinn hafi farið eithvað upp ánna, það er nýr lax að koma inn daglega á bilinu 10 - 14 punda.

Bedel fékk tvo 14p úr junction pool, Vauchin fékk einnig tvo, einn úr junction og annan úr pump pool. þeir vógu 5 og 12p

Lesa meira

 
IMG_0344

22.6.2006 : Miðvikudagur í Kola

Parantelli fékk einn úr homepool sem vóg 10 pund, Nikolai og Fabrice fengu tvo 13 punda, Pierre Vauchin fékk einn 15punda úr bridge pool og Bedel fékk einn 13punda úr three stones. Alan Vanthier missti einn risafisk í Kitza rétt við netið, leiðsögumennirnir giskuðu á að hann væri um 35 pund, Chevallier landaði 12p úr pump og missti nokkra, Fabrice fékk einn se var 14pund úr bear beat. Patrick og Rosatto lönduðu tveimur löxum úr junction, báðir voru þeir 11p, einnig missti hann Lesa meira
 
IMG_0412

20.6.2006 : Þriðjudagur í Kola

Vauchin landaði 12p úr bear pool öðrum 20 punda var einnig landað úr sama stað, Vauchin landaði smálax úr Dry martini og missti annan. Alan Vanthier fékk tvo laxa úr reindeer báðir vógu þeir 12pund, Bedel missti einn tröllvaxinn í bridge pool, Chevallier landaði einum úr junction.. 11punda og svo missti hann tvo. Herve fékk einn 13p úr pump og missti tvo, Carsten landaði 2 löxum 9p og 16p úr monika pðool, Sandy landaði 3 löxum úr monika sem vógu 19p, og tveir 17p, Rosatto og Patrick fengu tvo Lesa meira
 
IMG_0134

20.6.2006 : Mánudagur í Kola

Bedel landaði 12p úr homepool, Vachet landaði 23pundara úr sama stað, Vanthier landaði 3 úr monica allir 12punda, Nikolai landaði einnig 12pundara úr monica. Denis Poch landaða tveimur löxum 18 - 20punda úr junction. Carsten landaði 3 löxum úr la parska sem vógu 13, 14 og 17 pund. Henry landaði einum úr junction sem var 16 pund, Herve landaði einum 13 punda og missti 4 úr junction!!! Sandy landaði einum úr la parska sem var 13 pund og missti einn mjög stóran, Ge Ge landaði einum 15 punda Lesa meira
 
40lbs

20.6.2006 : Sunnudagur í Kola

Bedel hollið landaði 2 úr mica og misstu 2, einum og úr homepool og misstu annan, fiskarnir tóku sunrize shadow og snældu, stærðin var 10 - 13 pund. Carsten frá danmörku landaði tveimur smálöxum í flúðonum fyrir neðan junction, Sandy landaði 13 punda lax úr pump og missti annan. Parantelli og Alan lönduðu 5 löxum úr Lesa meira
 
IMG_0017

19.6.2006 : Laugardagur í Kola

Það var hellidemba þegar nýtt holl byrjaði veiði í dag, Henry og Rodrigues fengu 3 úr Monica pool, Sandy frá Bandaríkjunum fékk 3 á reindeer svæðinu laxarnir voru frá 12-18 pund, Carsten frá Danmörku landaði tveimur löxum, einum úr junction sem vóg 20 Lesa meira
 
IMG_0344

19.6.2006 : Föstudagurinn í Kola

Það komu 18 laxar á land í dag, tveir stærstu voru 20 og 22 pund og var það Antti Parkinen frá Finnlandi sem fékk þá. Það er nýtt holl að koma í dag og það verða Lesa meira
 
IMG_0163

19.6.2006 : Fimmtudagurinn í Kola

Í dag komu 19 laxar á land,  tveir stærstu voru  27 punda og var það Markku Lamppu sem að fékk annan og Amos Smith fékk hinn sem að var 28 punda, Sugai fékk Lesa meira
 
IMG_0220

15.6.2006 : Kola miðvikudagurinn 14 júní

Það veiddust 7 laxar í Kola í dag og sá stærsti var 31 pund og var það veiðimaðurinn James Gunning sem fékk hann. Lesa meira
 
Kola

15.6.2006 : 210 laxar komnir á land eftir hálfa viku í Ponoi.

það er fullt af fisk á hreyfingu í ánni og skilirðin eru fullkomin þrátt fyrir að vatnsshæðin sé einu feti undir eðlilegri hæð. Mest megnið af fiskinum er að taka hitch á flotlínu. Lesa meira
 
kola

14.6.2006 : Kola þriðjudagurinn 13 júní

Það komu 15 laxar á land í Kola í gær og þeir stærstu voru á bilinu 18 - 20 punda. Lesa meira
 
kiddi1

13.6.2006 : Mánudagurinn í Kola

Í gær komu 16 laxar á land í Kola ánni og þar af einn 35punda sem að Julian Pulland landaði og er það sá næst stærsti á þessu ári. Lesa meira
 
Acha

12.6.2006 : Stuttar fréttir frá Rússlandi

Seinasta vika í Acha Ponoi skilaði 430 löxum, margir 18-20 pund. Það er ofsalega mikið af af stórum laxi.

Íslendingarnir sem voru í Acha drift fengu 55 laxa.

James Gunning hringdi í gær frá Kola og þar veiddust 9 laxar í gær, þar af einn 26 punda.

Marta Sigurjónsdóttir

marta@lax-a.is

Lesa meira

 
kiddi4

11.6.2006 : Kola - Laugardagur.

James Gunning veiðimaður sem er að veiða Kola ánna þessa vikuna hringdi inn veiðifréttir í kvöld. Hollaskipti voru í ánni í dag , nýtt holl sem birjaði að veiða eftir hádegi lönduðu 9 stórlöxum , þar af voru tveir þeir stærstu 26 punda og 22 punda.
Arni arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
kiddi3

9.6.2006 : Kola fimmtudagurinn

Það var rosalega heitur dagur í Kola í dag, örrugglegaeithvað um 25C. Vatnsmagnig fer minkandi og er áinn núna að komast í fullkomið ástand. Angus Ross og Dr. Alan Watkinson veiddu junction poll í morgun, Alan landaði 10pundara. Danni landaði einum 19p úr Kitza, og öðrum 19p úr pump pool, James Gunning fékk 23p úr Lesa meira
 
Kola Lodge

8.6.2006 : Kola miðvikudagurinn

Yndislega fallegur dagur hjá okkur í Kola í dag, sólin skín, himininn er blár og hlýr, áin er að lækka í sitt eðlilega horf og allt er eins og það á að vera. Þremur löxum var landað úr junction í morgun 22p, 10p og 12p, tveir úr pump pool 22p og 21pundari og allir á snældu. Dimitri landaði einum 28pundara úr net pool, Anguss Ross Lesa meira
 
Acha

7.6.2006 : Kola þriðjudagurinn

Vatnið er enn frekar hátt hérna í Kola en það er samt sem áður byrjað að lækka og lækkaði um eina 15cm í nótt. Það kom einn 22p á land úr bridge pool og svo kom annar 22p úr three stone pool og svo 20p úr dry martini pool, það komu 20p og 22pundari úr efri catle pool, svo annar 19p úr neðri catle pool, svo kom 19pundari og stærsti lax ársins +20kg eða 45pund!!! Allir fengust þeir á Lesa meira
 
west09

6.6.2006 : Alaska west

Eftir viku fer ég til Alaska. Það eru núna 20 ár síðan ég veiddi í þessari stórbrotnu nátturu norðursins, en samt eru minnigarnar greiptar í mig eins og þetta hafi verið í gær. Þótt að í síðustu ferð hafi ég veitt ýmsar tegundir af lax fékk ég aldrey tækifæri til þess að veiða chinook eða king salmon og það er einmitt ástæðan fyrir því að ég ætla að snúa aftur þangað. Ég hélt alltaf að kóngalax væri aðeins hægt að veiða á stórar og þungar græjur og það heillaði mig lítið. Nýverið rakst ég á fyrirtæki sem að sérhæfir sig í að veiða kóngalax á flugu og Lesa meira
 
32 PUNDARI

6.6.2006 : Mánudagurinn í Kola

James Gunning landaði 20p úr Bridge pool og Danni missti eitt tröll sem að dró hann niður allar flúðirnar fyrir neðan Catle pool, risafiskur... James missti svo annan í Homepool. Angus Ross missti lax í broken rod pool. Ben Savage landaði 25punda, 17 og 13 punda og Sandy Savagelandaði 20p og 18p úr junction og pump pool. Thomas Martin landaði 20pundara úr Lesa meira
 
Varzina50

6.6.2006 : Kola sunnudagurinn

James og Danni fóru upp á Bear beat í morgun og james missti 4 en náði engum. Danni landaði tveimur 19p í Hook pool. Tveir nýir veiðimenn bættust í hópinn í dag, Angus Ross og Dr. Jhon Watkinson þeir settu í 2 í pump pool og 2 í junction pool en misstu þá alla. Ben og Sandy savige veiddu á Reindeer beat í dag og lönduðu tveimur fiskum sem að vógu 24p og Lesa meira
 
Arni_and_crew_by_Jim_York

3.6.2006 : Kola Laugardagur

Ég og Danni fórum í Monica pool í morgun, eftir aðeins stuttastund fengum við einn 16 pundara, stuttu seinna mistum við annan neðs í hylnum. James Gunning fór í Kitza og náði einum 20 pundara einnig var öðrum stærri landað þar af Rússnenskum veiðimanni. Bræðurnir Ben og Sandy áttu frábæran morgun en þeir fengu 5 laxa og alla stóra. 23 pundari kom á land í morgun í pump pool. Nikolay og Vladimir Frá st péturborg fengu 5 laxa í tree stones og junciton pool, tveir 14 punda, 16 pundari, og tvo 19 pundara..
bestu kv Arni

Lesa meira

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

bigfish

31.5.2013 : Heimsins stærsti lax

Þann 17. Maí, 1985 landaði Les Anderson frá Soldotna laxi sem sló öll skráð heimsmet en hann var 97 pund og veiddur í Kenai ánni í Alaska. Lesa meira
 
Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar