Fjölskylduparadísin á Snæfellsnesi - Lýsan er komin á agn.is
Lýsa er staðsett á einum fegursta stað landsins , undir Snæfellsjökli. Vatnasvæðið er ákaflega fallegt og friðsælt. Veitt er í fjórum vötnum og ám á milli þeirra. Lýsa er eitt af fáum vatnasvæðum á Íslandi þar sem allar tegundir íslenskra ferskvatnfiska veiðast, sjóbleikja, vatnableikja , urriði , sjóbirtingur og lax!
Grenlækur sv. 3 sló í gegn í fyrra
Suðurland 270 km frá Reykjavík, rétt ofan við Eldvatn. Ekið er áleiðis til Kirkjubæjarklausturs og farið yfir brúna á Kúðafljóti síðan fljótlega tekinn afleggjari til suðurs/hægri niður í Meðalland. Ekið er að bænum Efri - Steinsmýri. Meðallandsafleggjarinn er hringvegur sem endar upp við brýrnar á Skaftá. Það má einnig aka alla leið til Kirkjubæjarklausturs og fara niður Meðallandsafleggjarann þeim megin niður í Grenlæk.
Veiðisvæði:
Fyrir landi Efri-Steinsmýra. Svæði 3 er fyrir neðan Hópið. Leyfilegt er að landa einum fiski á stöng á dag, eftir það má veiða og sleppa.
Hér að neðan ætla ég að vitna í tvær fréttir síðan í fyrra sumar.....
