Fréttasafn

gosi_veidi

24.6.2005 : Lax-á Line að SVÍNVIRKA!!!

Ágúst K. Ágústsson var heldur betur í fínu formi þegar hann hringdi hingað á skrifstofuna um 8 leytið í morgun eftir að hafa opnað Brynjudalsá. Þá þegar var hann búinn að landa einum 7 punda, einn síns liðs, án háfs, hlaupandi niður af klettinum til að ná þeim silfraða sem var ekki eins sáttur við tapaðan leik!

Ágúst var að víga nýju Lax-á line 9,6" flugustöngina sína og segir hana "SKO SVÍNVIRKA!!!" !

Lesa meira

 
img_3045

21.6.2005 : Hálfir dagar í aflahæstu veiðiá landsins eða Eystri Rangá á agn.is

Nú gefst veiðimönnum kostur á að skreppa í Eystri Rangá í hálfan dag því nú eru komin veiðileyfi inn á vefinn agn.is þ.s. hægt er að kaupa stangir í hálfan dag.

Því mjög vinsælt var í fyrra fyrir veiðimenn að skjótast austur í Rangárvallasýslu og renna fyrir lax án þess að þurfa að kaupa heilan dag.

Lesa meira
 
BR

20.6.2005 : Lax kominn í Brynjudalsá

Glöggur maður sem var að keyra í Hvalfirði í gær gerði sér lítið fyrir og stoppaði við Brynjudalsá og sá þar strax lax við brúna sem hann áætlaði að væri á bilinu 10 – 12 pund.

Lesa meira
 
Jim_York_24_pounder

18.6.2005 : Kola og Kitza í Rússlandi - opna!

Kola og Kitza opnuðu siðasta Laugardag þann 4 Juní , viku seinna en venjulega vegna mikilla vatnavaxta. Fyrsta daginn kom einn 22 punda lax á land , síðan hafa komið 5- 10 laxar á land á hverjum degi , fullvaxnir fiskar frá 20 – 30 pund. Í dag var mikið að ske , stórar göngur þrumuðu í gegnum hyljina , í dag var landað 14 – 16 – 18 – 22 – 22 – 24 – 25 – 25 – 25 – 29 pundurum ásamt nokkrum smærri löxum.

Lesa meira
 
agnminniforweb

16.6.2005 : Veiðileyfi í Blöndu svæði 3 eru komin inn á agn.is

Öll þau veiðileyfi sem eftir eru á svæði 3 í Blöndu eru nú komin inn á agn.is undir tengilinum veiðileyfi á agn.is Lesa meira
 
DSC00109

15.6.2005 : 2 laxar komnir úr Miðfjarðará á fyrstu 40 mínútunum svo vitað sé

Við heyrðum í Stefáni Sigurðssyni sem er að veiða í Miðfjarðará núna og voru þeir félagar búnir að fá tvo laxa á fyrstu 40 mínútunum sem eru 12 og 14 pund. Við vitum ekki hvernig gengur á hinum stöngunum en við munum vera með fréttir hér um leið og þær berast okkur . Lesa meira
 
BLANDA04-07

14.6.2005 : 42 laxar eru komnir á land í Blöndu

Allt er á fullu í Blöndu og eru nú komnir 42 laxar á land sem eru ekki af smærri endanum því stærðin er frá 4.0 kg – 8,5 kg og er óhætt að segja að tveggja ára laxinn sé að skila sér vel í ár.

Lesa meira

 
Ymsar_myndir_001

13.6.2005 : Veiðihúsin við Ytri Rangá að taka á sig mynd

Nú er allt á fullu að komast í stand við veiðihúsin okkar við Ytri Rangá. Aðstaðan verður hin glæsilegasta eins og búast mátti við og vonum við að allir eigi eftir að hafa ánægjulegar stundir þar í sumar og að sjálfsögðu í komandi framtíð.

Lesa meira

 
DSC00006

10.6.2005 : Við erum að fara til KÚBU í maí - komdu með :)

Við erum þegar farin að bóka stangir í vikunni okka á Kúbu 13. -19. maí á næsta ári. Enn eru 4 stangir lausar í þessa ævintýraferð. Það er einstök upplifun að fá 70+ punda tarpon á flugu - það vita þeir sem reynt hafa. Að auki eru margar aðrar spennandi tegundir á sveimi í Jardines de La Reina eins og bonefish - sem krefst mikillar kænsku af veiðimanninum, frísklegur permit og fleira spennandi.

Lesa meira

 
PICT0048small7

10.6.2005 : Laxveiði- lausir dagar

Blanda er í góðum gír og 25 laxar eru komnir á land þetta er allt stórlaxar sem hafa veiðst í Blöndu frá opnun og sá stæsti sem hefur komið á land er 17p. Laxinn er byrjaður að ganga á efrisvæðin í Blöndu og þann 7.júní voru Lesa meira
 

6.6.2005 : Slatti af stórlaxi sést í Miðfjarðará

Veiðimennirnir sem eru að opna Blöndu núna um helgina gátu ekki keyrt yfir Miðfjarðaránna án þess að skoða aðeins ofan í ánna og sáu þeir að þar lágu 6 – 7 laxar og það vænir. Miðfjarðaráin opnar ekki fyrr en 15. júní og er gott að vita til þess að laxinn sé byrjaður að streyma í ánna svo snemma. Lesa meira
 
picture(5)

3.6.2005 : Allt á fullu í Ytri Rangá

Nú er verið að bæta við veiðihúsi í Ytri Rangá og verið er að gera allt klárt og glæsilegra fyrir sumarið. ytri Rangá skilaði yfir 3300 löxum í fyrra og gerum við ráð fyrir að toppa það í komandi veiðisumri. Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Myndadiskur_2004_023

24.8.2011 : Þriðja hver rjúpa án unga

Þriðja hver rjúpa á Norðausturlandi er án unga og er greinilegt að færri fuglar verða á veiðislóðum í vetur. Fyrirkomulag á rjúpnaveiðinni í vetur hefur ekki verið ákveðið. Niðurstöður árlegrar rjúpnatalningar leiða í ljós að rjúpnastofninn á Norðausturlandi er mun minni en undanfarin ár..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
sk1

22.8.2011 : Gæsaveiðin fer rólega af stað

Skotveiðimenn um land allt fóru af stað á Laugardaginn en þá hófst Gæsaveiðin formlega. Misjafnt gengi var um land allt, allflestir voru þó á eftir Heiðargæsinni en skv veiðivísi var gengið misjafnt. Var það þó helst að frétta að ungfuglinn væri óvenjulega smár og lágt hlutfall af honum í hópunum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

19.8.2011 : Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir.

Lesa meira
 
YtriAegissidufoss

18.8.2011 : Lausar stangir næstu daga

Við eigum spennandi stangir lausar næstu daga og í næstu viku. Veiðin hefur verið að taka við sér í flest öllum ám og Rangárnar að gefa þriðjahvern lax sem veiðist á landinu. Frábært tækifæri til að skreppa í laxveiði. johann@lax-a.is Lesa meira
 
DEE200712

5.8.2011 : Laxveiði í Skotlandi

Við eigum lausar stangir í haust í áni Dee nánar tiltekið á Lower Crathes svæðinu. Laxveiðin í Skotlandi nær hámarki á vorin og á haustin og er því um að ræða frábæran tíma í áni. Veiðin er í rólegra móti um mitt sumar en þrátt fyrir það eru á meðaltali 130 laxar að veiðast á viku í allri áni. Lesa meira
 
Halla_05_HakanSteenlund_200

3.8.2011 : Hross í kringum veiðisvæði Hallá

Veiðimaður sem var í Hallá um verslunarmannahelgina hafði samband við okkur og vildi koma því á framfæri að hestar væri við veiðisvæði í áni. Hestarnir sækjast í saltið á bílunum og geta valdið tjóni a lakki bifreiðarinnar. Gott er að hafa varann á þegar menn leggja bílum við veiðistaði og athuga hvort hross séu á svæðinu.

Lesa meira
 
Grahegri

18.7.2011 : Nýr Íslenskur fuglavísir - Tilvalinn fyrir veiðimenn

Íslenskur fuglavísir er líklega ein þeirra bóka sem íslenskum ferðalöngum finnst ómissandi í sumarfríið. Þessi vinsæla bók er nú komin út í endurbættri útgáfu. Í þessarri nýju útgáfu hafa um fjörutíu fuglategundir bæst við frá fyrri útgáfum og er þetta rit bæði á íslensku og ensku tungumáli..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar