Listi af veiðileyfum í boði í júní í Blanda I
Einhverjar stangir forfölluðust í Blöndu svæði 1 í júní og hvetjum við þá sem ætla sér að renna fyrir lax í þessari stórlaxa á ð hafa hraðan á. Ekki eru fleiri dagar til í Blöndu í ár og hvetjum við þá sem vilja veiða í Blöndu í sumar að tryggja sér daga hér beint af vefnum því ekki eru um fleiri veiðileyfi að ræða. Smellið hér til þess að kaupa veiðileyfi beint af vefnum.
1300 laxar á einni viku!
1.300 laxar veiddust í síðustu viku í Varzuga ánni, 35 stangir í þremur veiðihúsum við ánna Varzuga tóku þennan mikla afla.
Kola og kitza árnar eru rosalega vatnsmiklar , þó hefur frést af nokkrum nýgengnum löxum sem veiðst hafa í neðanveðri ánni.
Á morgun ætla ég að prufa okkar svæði og kanna hvort sá silfraði er mættur á svæðið , á föstudaginn kemur fyrsti hópurinn ....
Lesa meiraLax-á vikur í Kúbu 2006 - RISA tarponar
Óvæntar göngur í Tungufljót
12.600 gönguseiðum af Hvítár stofni ( Dalsá / Fossá ) var sleppt ofan Faxa í Tungufljóti sumarið 2003. Nú í sumar veiddust 97 laxar í Tungufljóti , óvæntur og skemmtilegur árangur af þessari littlu seiða sleppingu, og það þrátt fyrir að netin væru niðri að stórum hluta sumars í Hvítá. Gaman væri að geta sér til hvað margir laxar í viðbót hefðu skilað sér ef engin netaveiði væri í Hvítá.
Víðidalsá leigð út til 3 ára til H&S
Flottasta laxveiðiá landsins var leigð út á dögunum til H&S ( Harpa og Stefán ) , áin var leigð til 3 ára 2006 - 2007 og 2008 , það var aldeilis frábær veiði í Víðidalsá síðasta sumar. Samkvæmt spám Veiðimálastofnunar verður enn betri veiði 2005 , bjart frammundan í Víðidalsá.
Selá
Tvær stangir losna í Selá á besta tíma.
Tvær stangir losnuðu ávænt í Selá á best tíma , 3 dagar frá hádegi 16/7 til hádegis 19/7. Uppl. á skrifstofu Lax-á , Árni Baldursson 5576100 eða arnibald@lax-a.is
Met sumar 2005 ??
Það gleður okkur hjá Lax-á að heyra spár um komandi veiðisumar.
Guðni Guðbergsson sagði í ræðu á föstudaginn sl, í húsi orkuveitunar að allt benti til þess að það væri metsumar í uppsiglingu. Mætti búast við töluverðu af stórlaxi og miklu magni af smálax ekki minna magni en var 2004.
Lax-á line - nýjar og öflugar flugustangir!!
Allar stangirnar eru af háum gæðaflokki, léttar og með hraðari stöngum á markaðinum í dag!
Þeir veiðimenn sem þegar hafa prófað stangirnar hafa verið mjög hrifnir.
Tungufljót - Pistill
Ég er nú kannski ekki rétti maðurinn til að skrifa um þetta veiðisvæði, en ég fór þarna í fyrsta sinn til veiða, núna í vikunni. Ég get þó skrifað um fyrstu upplifun mína af svæðinu í þessari veiðiferð. Við fórum saman tveir, byrjuðum seint og hættum snemma, en náðum að kíkja á nokkra veiðistaði á þessum tíma.
