Urriði

Untitled-1ee

Norður Patagonía í Argentínu - paradís fluguveiðimannsins

Myndin hér að ofan sýnir hluta af ókönnuðum vatnasvæðum í TECKA!!

Pool_unknown_07Eins og flestir vita þá er veiðin í Río Grande oft erfið og krefst mikils dugnaðar af veiðimanninum. Eftir vikuveiði í Rió Grande og baráttu við vindinn í suðrinu er fullkomin blanda að færa sig norður á bóginn og veiða í annað hvort 3 eða 6 daga í sólinni, innan friðaðara þjóðgarða með skógi vöxnum hlíðum og árbökkum. Andes fjöllin gnæfa svo yfir í allri sinni dýrð - maður horfir á fegurðina þarna með andakt!

Í Norður Patagóníu veiða menn regnbogasilung, urriða og lækjarurriða á flugu.  Þar sem mikill gróður er við flestar árnar á þessu svæði, veiða menn annað hvort frá bátum sem fljóta niður árnar - eða vaða. 

 

 

 

 

 

Fyrir þá sem vilja sjá myndir og fá frekari upplýsingar eru hér að neðan tenglar inn á enska hluta síðunnar okkar - vinsamlega "klikkið" á breiðletruðu /undirstrikuðu nöfnin. 

*****

Lax-á gerði einkasamning við hugsjónarmenn á risa búgarðinum TECKA í Chubut, Esquel héraði.  Þetta er tímamótasamningur fyrir okkur þar sem Lax-á er nú einka umboðsaðili þeirra í Evrópu.  Tecka er FRÁBÆR kostur fyrir veiðimenn sem vilja fara um  ókannaðar slóðir og veiða jómfrúr ár og vötn. 

DSC00019Tecka_Eliot_C_Junior_3

Já, þeir eru hraustir og fallegir fiskarnir í TECKA!

DSC00082DSC00089

CARIDAD lodge inni í miðjum "óbyggðum"  - herbergin eru AFAR rúmgóð!

Tecka hefur yfir að ráða 175.000 hektara landsvæðis sem enn hefur ekki verið kannað til hlýtar.   TECKA er í raun stórbúgarður þar sem fram fer mikill sauðfjár- og nautabúskapur.  Þar sem núverandi eigendur TECKA eru ástríðuveiðimenn - fóru menn á stúfana og könnuðu vötnin og árnar innan landareignarinnar og viti menn þar iðaði allt af lífi, regnbogasilungur, urrriði og lækjarurriði voru þar um allt og í skemmtilegri stærð 2-6 pund.   Í dag hefur höfðustöðvum Tecka verið breytt í LÚXUS veiðihús og að auki hefur verið byggt nýtt hús CARIDAD Lodge innar í landinu.  Mikið er lagt upp úr öllum þægindum í báðum veiðihúsunum og er hreint ótrúlegt að finna annan eins munað svona lengst inni í landi, já næstum óbyggðum.  

*****

Þá heimsóttum við goðsagnarpersónu fluguveiða í Argentínu, Mr. Jorge Graziosi sem rekur mjög vel útbúið og skemmtilegt veiðihús við Bariloche.

DSC00054DSC00049

Arroyo Claro lodge                               "Lunch" á árbakkanum með Jörge!!!

IMG_0359DSC00071

Árni að fá'ann í blátærri "spring-pool!"    Áin RIVADAVIA

Jorge hefur veitt frá árinu 1967 og er lifandi goðsögn meðal veiðimanna bæði heima og heiman!   Það var ekki ónýtt að kynnast slíkum manni sem Jörge er - algjör viskubrunnur um allt sem viðkemur veiði í Argetínu og sögu veiðanna þar!  Að auki er "karlinn" algjör snilld sem guide og félagi.

*****

DSC00039IMG_0255

Rio Manzo lodge         Herbergin eru afar  rúmgóð , sum með nuddbaðkari...

DSC00022rio_manzo_trout

Veitt á ánni Rio Manzo                             Fengsæll veiðimaður 2005

Sonur Jorge's Sebastian Graziosi hefur fetað í fótspor föður síns enda mikill veiðimaður.  Sebastian vann áður hjá okkur í Toon Ken og er því mörgum Lax-á kúnum að góðu kunnur.  Hann ákvað nú að söðla um og færa sig nær heimkynnum sínum Bariloche og hefur nú endurgert Lúxus veiðihús við ána Rió Manzó í þjóðgarðinum N...   Þeir feðgar bjóða nú upp á vikuveiði 3 daga á hvorum stað og svo auðvitað fulla viku á hvorum stað ef menn kjósa það frekar.

*****

DSC00040DSC00043

Glænýtt veiðihús við Arryán                    ... beðið eftir kræsingunum....

DSC00054DSC00067

Áin Malleu í San Martin De Los Andes

Syðst á þessu svæði í San Martin De Los Andes - reka þeir félagar Pablo Mazza og Claudio vinur hans alveg frábæran möguleika fyrir "gourmet -fólk".  Á meðan Pabló er ástríðufullur fluguveiðimaður er ástríða Claudio's góð vín, vindlar og MATUR.  Svo heppilega vill til að kona Claudio  hún Augustine deilir sömu ástríðu með manni sínum ... sérlega eftirréttum.  Það er því enginn svikinn sem heimsækir þau hjónin.  Claudio á afar fágætt safn af góðum argentínskum vínum s.s. Luigi Bosca, Sabatah,Terrazas, Salentein, Rutini og fleiri góðar tegundir.  Fyrir áhugasama setur hann upp vínkynningu í vínkjallara í veitingastaðnum sínum í bænum.

*****

DSC00078DSC00087

Laguna Larga lodge.                               og kræsingar í vændum!!

DSC00065Corcovado_mouth_2

Gonzalo með einn vænan...                    Ánægður veiðimaður 2005

Síðast en ALLS EKKI síst eru svo þau yndislegu hjón Laura og Gonzalo í Laguna Large, Esquel.  Enn of aftur var maturinn tær snilld og mikil ástríða í gangi.   Hvað er þetta eiginlega með veiðimenn og góðan mat!!!   Gonzalo er mikill listakokkur og jafnframt fluguveiðimaður af lífi og sál.  Þau hjónin reka nýjan afar notalegan og hlýlegan lodge á mjög fallegum útsýnisstað við vatnið Laguna Larga (Vatnið Langa).  Veitt er í vatninu sem og í óteljandi ám og örðum vatnasvæðum í nágrenninu.

Frekari upplýsingar veitir Árni Baldursson á skrifstofu Lax-á.

 E-mail: arnibald@lax-a.is, sími: 531 6100

 



 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

Urriði


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar