Rio Grande - Toon Ken

25POUNDER_toonken

Fyrirmyndar veiði og aðstaða

Sérhannað og glæsilegt veiðihús er við veiðisvæðið Toon Ken. Það er staðsett á fallegum útsýnisstað rétt ofan við veiðisvæðið. Við hönnun hússins var mikil áhersla lögð á þarfir veiðimanna og öll þægindi. Í veiðihúsinu er fluguhnýtingaraðstaða, vöðlugeymsla, setu- og borðstofa, bar, heitur pottur og skjólsæl verönd. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi og er internet tenging í húsinu fyrir þá sem þurfa á slíku að halda í veiðiferðum..

Pool_unknown_09

Veiðimenn okkar í Toon Ken, Rio Grande undanfarin ár eru á einu máli um nýja veiðihúsið fái hæstu mögulegu einkunn, hvað varðar góðan mat, ljúft starfsfólk, góð og hentug húsakynni. Alls eru 7 stangir leyfðar í Toon Ken..

RG73

Toon Ken veiðisvæðið nær yfir efra og miðsvæði árinnar Rio Grande alls 20 km svæði, veitt er frá báðum bökkunum.  Rio Grande er auðveld yfirferðar en sumstaðar getur verið erfitt að vaða þar sem botninn er grýttur.  Þrátt fyrir það reynir mikið á tækni og getu veiðimanna.  Sá stóri getur verið dintóttur og látið hafa fyrir sér.  Aðra stundina getur hann tekið niður við botninn en þá næstu komið stökkvandi á þurrflugu í yfirborðinu..

DSCF0159

Auk þess getur vatnsmagn árinnar breyst á stuttum tíma í kjölfar rigninga og þurrka.  Allar aðstæður hvetja veiðimanninn til að sýna hvað í honum býr og sýna tilbreytingu hvað tækni og flugur varðar!  Þá verður honum launað erfiðið ríkulega..

RG77

Sjóbirtingurinn í Rio Grande liggur yfirleitt nálægt bakkanum yfir miðjan daginn en ef vatnsyfirborðið er lágt kjósa þeir fremur hraðara vatn við enda veiðistaðanna.  Eins og venja er ferðast þeir mest snemma morguns, síðdegis og í ljósaskiptunum..

RG711

Leiðsögumenn okkar í Toon Ken eru margreyndir leiðsögu- og veiðimenn.  Þeir eru mjög kunnugir ánni og dyntum þess stóra og því um að gera að nýta þekkingu þeirra til hins ítrasta.  Leiðsögumennirnir hjálpa svo til við að löndun og sleppingu og þeir eru góðir með myndavélinna svo það er ekki úr vegi að byðja þá um að taka nokkrar myndir í action..

Rio_Grande_4_09

Aðallega veiðist þarna hinn margrómaði RISA sjóbirtingur af meðalvikt 15 pund. En menn geta þó alltaf átt von á að setja í þann stóra, allt frá 24-30+ pund!!!  Auk þess veiðast þarna urriði og regnbogasilungur..

Toon Ken outside

Viltu framlengja ferðina? Það eru margir spennandi kostir í boði, skotveiðar á dúfum, öndum eða gæsum í Cordoba og Buenos Aries - 3 dagar á sérkjörum fyrir þá sem taka viku á Rio Grande. Einnig er hægt að fara í Dorado veiði til Corrientes eða á stórdýraveiðar um alla Argentínu t.d. Red Stag, Buffalo, Puma ofl. ofl..

RG720

Við getum með ánægju haldið myndasýningar fyrir áhugasama á skrifstofu Lax-á eða hitt hópa sem eru í veiðiferð í veiðihúsunum okkar í sumar.  Boðið er upp á eðal rauðvín frá Argentínu á meðan á sýningu stendur. Þið getið einnig fengið fría geisladiska hér á skrifstofunni sem lýsa ævintýrinu..

RG718

Allar nánari upplýsingar má nálgast hér hjá okkur á skrifstofu Lax-á, við tökum vel á móti þér..

Bestu kveðjur,

            Axel Óskarsson  axelo@lax-a.is

             Sími: 531-6100

                Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is

                  Sími: 531-6100

 

Content Menu (Change Article)



 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

Rio Grande - Toon Ken


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar