Rio Menendez
Rio Menendez áin - Hliðará Rio Grande í Tierra Del Fuego
Komdu með Lax-á í sjóbirtingsævintýri
Frábær viðbót við Rio Grande
Áin Rio Menendez er hliðará Rio Grande og rennur í hana. Það eru frábærir veiðistaðir í henni eins og sjá má hér að ofan. Það er mjög góð veiði í ánni, þó ekki eins og í Rio Grande. Það má með sanni segja að Menendez áin sé skemmtileg til veiða, fallegt umhverfi, geggjaðir veiðistaðir..
Menendez áin er örlítið minni en sydtir sín Rio Grande, og því þarf maður minni stangir og léttari útbúnað. Flotlínur, einhendur, andstreymisveiðar með nymphum, hitch aðferðin virkar mjög vel og ef það er logn þá er þurrflugan banvæn og án efa heitasta skvísan á ballinu..
Við getum tekið á móti hópum allt að 10 manns, en þá er gist í 5 tveggja manna herbergjum. Veiðihúsið er nýuppgert, stór og mikil herbergi með góðu plássi, hlýleg móttaka, setustofa og borðstofa, bar og svo afar góð aðstaða til að hnýta flugur og hlusta á sannar veiðisögur veiðifélaganna..

Á kvöldin gerast hlutirnir hratt og þegar þið heyrið orðin "Magic Hour" þá er betra að vera tilbúinn með réttu fluguna. Sunrayinn ógurlegi, virkar vel og ef þú ert að kasta henni uppfyrir þig alla leið að hinum bakkanum, draga hana í hægum en löngum rokum, þá eltir hvert ferlíkið á eftir öðru, verst er þó að þú sérð ekkert hvað er að gerast fyrr en þú ert kominn með fiskinn í fangið, en mómentið er geðveikt..
Veiðihúsið heitir Rosita og er virkilega skemmtilegt, flott herbergi með góðu útsýni eins og sjá má hér að ofan..
Hér má sjá inn í setustofuna, afslappandi umhverfi í alla staði sem er nauðsynlegt eftir átökin við bakkann..
Það að veiða í Menendez ánni mun gefa þér minningar um frábæra veiði um ókominn tíma, stórir og fallegir Sjóbirtingar. Hún er þekkt um allan heim og 82& veiðimanna snúa þangað aftur, ár eftir ár, eftir ár..
Matur í veiðihúsinu er fyrsta flokks, öll þjónusta er til fyrirmyndar og vínin eru ekki af verri endanum, öll frá Argentínu..
Hér er einn snillingurinn sem vinnur við ánna sem leiðsögumaður, "Big Jorge" er hann kallaður en hann er alltaf klár með eldhúsið aftan á pallinum á bílnum..
Ufff.. þetta lítur vel út..
Það er mjög sniðugt að slappa af við Menendes ánna, eftir viku veiði í Rio Grande, en við Rosita veiðihúsið má líka fara á hestbak, spila golf og fara í útsýnisferðir..
Fallegt sólsetur..
Allar nánari upplýsingar má fá hjá okkur hér á skrifstofu Lax-á,
Við hlökkum til að heyra frá þér..
Kveðja
Axel Óskarsson axelo@lax-a.is
Sími: 531-6100
Árni Baldursson arnibald@lax-a.is
Sími: 531-6100
