Sjóbirtingur

G_Nordal_m_storan

Áin Stóra - Rio GRANDE - Heimkynni RISA sjóbirtinga!

Undanfarin ár hefur Lax-á boðið uppá veiðiferðir til Argentínu við góðan orðstýr og ánægju þeirra sem reynt hafa. Í kjölfar aukinnar eftirspurnar hefur verið ákveðið að taka skrefið lengra í fyrirhugaðri útrás fyrirtækisins á þessum slóðum. Við höfum aukið við framboð okkar í ánni Rio Grande, veiðisvæðinu við Toon Ken, auk þess sem við höfum náð samningum um önnur veiðihús við ánna sem og nágranna Rio Grande, Rio Gallegos..

24 lbs from Toon Ken

Rio Grande er og hefur verið spennandi og afar krefjandi valkostur fyrir íslenska veiðimenn. Áin er þekkt um allan heim fyrir tröllvaxna sjóbirtinga þar sem meðalþyngdin er um 12 pund en á besta tíma er alvanalegt að menn setji í 20+ punda fisk. Meðalveiðin er 10-35 fiskar á hverja stöng eftir vikuveiði. Þar sem oft blæs byrlega þarna á syðsta odda Argentínu, hefur íslenskum veiðimönnum gengið vel að fanga bæði vind og þann stóra..

 Arnies_girlfriends

Í Rio Grande er eingöngu veitt á flugu og er öllum fiski sleppt. Rio Grande eða Áin stóra, eins og hún heitir á íslensku er 150 km löng og á upptök sín í Andes fjöllum. Hún rennur um Chile og Argentinu á  leið sinni út í Suður Atlantshaf. Sjóbirtingur á ekki náttúruleg heimkynni á suðurhveli jarðar, en upphaf sjóbirtingsveiða í ánni Rio Grande, í Tierra Del Fuego í Argentínu má rekja aftur til ársins 1935..

bv6

Veiðihúsin í Argentínu er öll á mjög háu gæðastigi en þar er þaulþjálfað starfsfólk í hverri stöðu sem lætur manni líða vel allan sólarhringinn. Maturinn er æðislegur, stórsteikur, ferskur fiskur og allskonar spennandi réttir sem maður hefur ekki smakkað áður. Einnig eru vínin í sérflokki og eingöngu borin fram eðalvín í hvert mál. Einnig er netsamband, í húsunum og boðið er uppá þvottahús fyrir skítug föt..

Alex_02

Breskur hugsjónarmaður að nafni John Goodall ásamt félaga sínum, heimamanninum Jose Menendez fengu send 100.000 seiði frá Bretlandi. Seiðin sem bæði voru regnbogasilungur og lækjarurriði, höfðu ferðast langa leið frá Evrópu til Chile og þaðan til Tierra del Fuego pökkuð í mjólkurbrúsa ásamt vatni og mosa. Þrátt fyrir erfitt ferðalag héldu 60.000 seiðanna lífi..

asado at Toon Ken

Þeim var vandlega komið fyrir í tveimur litlum þverám Rio Grande, Candelaria og MacLennan. Ekki var næg fæða handa urriðanum í ánum og því héldu seiðin til hafs í kjöraðstæður þar sem gnægð var af góðri fæðu. Seiðin snéru svo aftur í ána sem feitir og pattaralegir sjóbirtingar, sannkallaðir orkuboltar..

DSC00253

Sjóbirtingurinn í Rio Grande þrífst aðallega á sérstakri tegund sardína sem finnst í stórum stíl við strendur Tierre Del Fuego, enda hafa rannsóknir sýnt að fiskurinn ferðast ekki nema um 100 mílur burt frá ánni yfir vetrartímann..

 DSC00280

Á tæpri öld hefur sjóbirtingsstofninn í Rio Grande styrkts og byggst upp eins og best verður á kosið. Þarna hefur eingöngu verið veitt á flugu og öllum fiski slept frá 1983. Sífellt stærri og fleiri fiskar veiðast, og  fiskisagan flýgur því í dag er Rio Grande orðin ein af eftirsóttustu sjóbirtingsveiðiám heims. Algeng vikuveiði er 20-30 pr.stöng, meðalþyngd 15 pund. Veitt er á léttar græjur og því viðbúið að viðureignin verði fjörug og nái svo sannarlega að koma blóðinu á hreyfingu..

R10

Tölurnar hér fyrir neðan sýna góðan árangur í kjölfar sleppinganna:

Ár                             Meðalveiði á stöng/á viku              Meðalþyngd í pundum 1983-1990                                12                                                  7               1990-1995                                    20                                                 9          1995-2000                                    28                                               10           2000-2003                                  36                                               12            2003-2008                                   38                                              

                                                                                                                  

Allar nánari upplýsingar má nálgast hér á skrifstofunni hjá okkur..

Rosita 16

Settu þig í samband, við tökum vel á móti þér..

 

Axel Óskarsson  axelo@lax-a.is

Sími: 531-6100

Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is

Sími: 531-6100

 



 

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar