Dorado/PIRA LODGE
Golden Dorado –“Hinn gyllti stríðsmaður” Oftast nefndur Tígrisdýr vatnanna..
Heimkynni Dorado fisksins eru á landamæri Argenetínu og Paraguy eða á Ibera fenjasvæðunum sem telst einstakt á heimsvísu og þekur um 300.000 hektara svæði. Veitt er á langar straumflugur 15-20 cm langar og taumurinn er sér styrktur með stálþræði því tennur Dorado eru einstaklega beittar. Flugurnar eru bústnari en við eigum að venjast en Dorado er sólgin í þær og hendist á þær með offorsi..

Dorado er ferskvatnsfiskur ekki ósvipaður laxi en kraftur hans er engu líkur. Aðalsmerki hans eru loftfimleikar og sporðaköst enda er krafturinn slíkur að oft getur verið ill mögulegt að landa honum. Veitt er frá litlum bátum á fenjasvæðinu og er öllum fiski er slept..

Lax-á býður upp á ferðir til Corrientes þar sem veiðimönnum gefst kostur á að glíma við hinn gyllta stríðsmann. Gist er í lúxus veiðihúsi, Pira lodge, en er mikið lagt upp úr þægindum og dekri. Veiðihúsið býður uppá 5 herbergi með loftkælingu, sérbaðherbergi og verönd. Í húsinu er stór setu- og borðstofa, fluguhnýtingaraðstaða, veiðiverslun, bar, verönd og 20m útisundlaug. Síma- og internet tenging er í húsinu..

Í Pira lodge, líkt og annars staðar í Argentínu, er mikið lagt upp úr góðum steikum, ljúfum réttum og góðum vínum..
Það er því fullkominn endir á góðri veiðiferð í ánni Rio Grande, að enda ferðina á fenjasvæðum í 30°c hita, slaka á og hlaða batteríin áður en haldið er aftur heim á Frón. Lax-á veitir þeim sem það gera 15% afslátt af Dorado veiðinni..

Veiðimaður með allt keingbogið, leiðsögumaðurinn fylgist ákafur með..
Kastað fyrir Dorado að kvöldlagi, ekki slæm upplifun..

Er þessi fiskur ekki nógu góð ástæða til þess að fara til Argentínu..?
Allar nánari upplýsingar má nálgast hér hjá okkur á skrifstofunni..
Við hlökkum til að heyra frá þér..
Bestu kveðjur
Axel Óskarsson axelo@lax-a.is
Sími: 531-6100
Árni Baldursson arnibald@lax-a.is
Sími: 531-6100
