Stangveiði

DSC00338

Argentina - draumastaður fluguveiðimannsins!

Argentína líkist Íslandi á þann hátt að þar eru endalausir möguleikar í boði fyrir stangveiðimenn..Kíktu á málið og settu þig svo í samband..

Það er nauðsynlegt að undirbúa sig vel fyrir ferðalag til Argentínu, það er rúmur sólarhringur sem fer í ferðina. Flugur, veiðistangir og allur almennur útbúnaður er nauðsynlegur að hafa með ásamt því að vera með vatnsheldan fatnað. Ef þér vantar hinsvegar eitthvað, farangur týnist eða eitthvað þvíumlíkt þá er hægt að versla allt slíkt bæði í Buenos Aires sem og Rio Grande..

DSC01110

Veiða sleppa er sú aðferð sem menn notast við allstaðar í Argentínu og því er gott að vera búinn að kynna sér meðhöndlun á slíkri aðferð áður en haldið er til veiða. Veiða sleppa aðferðin hefur tekist vel hjá þeim og hefur viðhaldið og efldt stof sjóbirtingsins til muna. Leiðsögumaður þinn er vel vanur og kennir þér réttu handtökin á fyrsta degi. Einnig er hann reyndur með myndavélina og því ekki úr vegi að láta hann hafa vélina þína og biðja hann um að mynda þig í action..

RG72

Það þarf að vaða talsvert í Argentínu svo nauðsynlegt er að vera vel gíraður í vöðlum, passa áður en haldið er af stað að þær leki ekki og svo framvegis. Mikilvægt er einnig að hafa hlý undirföt því mikil vera í ánni er ávísun á kulda í kroppinn. Leiðsögumaður þinn er þó aldrei langt undan og segir þér hvernig á að fara að hverjum hyl..

Stella_and_Jorge_web

Allar nánari upplýsingar um ferðir til Argentínu má nálgast hér hjá okkur á skrifstofu Lax-á..

Við hlökkum til að heyra í þér..

Kveðja,

Axel Óskarsson  axelo@lax-a.is 

Sími: 531 6100

 

Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is 

Sími: 531-6100 

 

 

 

 

 

 

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar