Flash skjal

Argentína

Lax-á býður þig velkominn til Argentínu - Komdu með

DSC00041

Stangveiðifélagið Lax-á býður upp á margvíslega veiðimöguleika erlendis. Á ári hverju slást fjölmargir viðskiptavinir í för með okkur til stang-eða skotveiða út fyrir landsteinana..

Santi_Villa_Maria_1

Úrvalið er stórkostlegt allt árið um kring og hvort sem um er að ræða lax, sjóbirting, villisvín eða áskorun okkar um að kynnast nýjum og framandi tegundum til sportveiða þá lofum við því að þú stækkar sjóndeildarhringinn svo um munar..

Villa_Maria_1_feb_08

Hér má sjá Alejandro en hann stýrir veiðisvæðinu við Villa Maria í Rio Grande, með fallegan sjóbirting..

24 pounder Henrik Andersen

Argentína er einn af okkar vinsælust viðkomustöðum enda er veiðin þar geggjuð og fjölbreytt. Sjóbirtingurinn er vinsæll enda erum við með 2 bestu sjóbirtingárnar á okkar svæðum en þær eru Rio Grande og Rio Gallegos..

Axel Wimmer 21p Rio Grande

Hér er glæsilegur sjóbirtingur kominn í fang veiðimanns, en öllum sjóbirting er sleppt aftur í ánna. Argentínumenn eru frumherjar þegar kemur að því að veiða og sleppa, um 9000 manns koma þangað árlega hvaðanæva úr heiminum til þess eins að komast í veiðina þar því hún er æðisleg..

Dorado1

Önnur tegund af fisk sem við seljum veiðiferðir á er hinn óviðjafnanlegi Golden Dorado en hann er veiddur í fenjum sem eru gríðarlega stór og mikil. Það er algjör upplifun að fara á Dorado veiðar, allt veitt á einhendu og léttar græjur, frábært veiðihús með góðum mat og klassa vínum..

tres valley trout

Svona lítur Patagonia út í öllu sínu veldi, mörg vötn, snævi þaktir fjallstoppar og gróður.  Veðurfar í Argentínu er ótrúlegt og getur verið annsi misjafnt á milli landshluta en það er yfirleitt mjög hlýtt í Patagoniu og Buenos Aires en kaldara og vindasamt þegar veitt er í Rio Grande, en Rio Grande tilheyrir landsvæði sem heitir Tierro Del Fuego og hún á upptök sínn í Chile í Andes fjöllunum..

ladormida-cordoba7

Við bjóðum einnig uppá svakalega skotveiði með alvöru skytterýi, t.d. á dúfur, þá er veiðimaður að skjóta uppí 700 stk á dag..! Lax-á græjar öll byssuleyfi og slíkt.  Þess má geta að öll veiðin rennur beint til Munaðarleysingja hæla í Argentínu sem nýta bráðina vel fyrir börnin..

La Dormida

Lax-á notast eingöngu við fyrsta flokks veiðihús með bestu mögulegu aðstæðunum..

DSC00013

Hér er guidinn búinn að setja upp borð og fínerí til að hafa hádegisverð út í guðsgrænni náttúrunni. Það er ekki annað hægt að segja en að þetta sé yndislegt..

ar104

Við bjóðum einnig uppá Stór Skotveiðar, hér má sjá Árna Baldursson með La Pampa dýr..

tres valley trout

Regnbogasilungur er einnig vinsæll og tókum við nýtt svæði í notkun í fyrra sem heitir Tres Valleys og er í Patagoniu, ótrúlega smart og elegant veiðihús þar með frábærri þjónustu.  Silungurinn er svona frá 3 pundum uppí 10 pund..

Seatrout_21_Alex_03

Þarftu aðra ástæðu en þennan fisdk til að sannfæra þig um að fara til Argentínu til veiða..?

villa_maria_6_feb_08

Glæsilegur þess, nýgenginn og björt hrygna..

Það er hægt að blanda saman veiðum á sjóbirting og Dorado, svokölluð combo vika, en þá byrja menn á birting og fara svo í Doradoinn.  Þessi prógrömm eru sérsniðinn og því gott að hafa samband því fyrr því betra..

R4

Hér er stoltur veiðimaður með Red Stag, en það er mjög vinsælt að skjóta þá enda hausinn á þeim með afbrigðum fallegur..

Boar2

Rærðarinnar villisvín eru bæði á veiðimatseðlinum og matseðlinum í veiðihúsinu..

red wine

Í Argentínu má finna mörg af þekktustu og bestu vínum heims, en veðurfar í Argentínu er afara hagstætt til víngerðar..

buffalo hunting in Mendoza

Hér er Árni Baldursson á hestbaki að skjóta risa Vatna Buffalóa..

Árni með Buffaloa

Og hér er hann fallinn, en veiði á þessum dýrum fara fram í Mendoza héraðinu..

DSC00003

Hér eru menn að veiðum í Rio Manzo í Patagoniu, geggjað útsýni og stórfengleg veið..

Pira Lodge nóv 07 13

Þetta er meðalstærð á Dorado, ekki slæmt á einhendu..

DSC00048

 

Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá okkur á skrifstofu Lax-á alla daga frá 09-17..

Við hlökkum til að heyra frá þér..

Bestu kveðjur,

 

Axel Óskarsson  axelo@lax-a.is

Símanr:  531-6100

 

Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is

Símanr:  531-6100


 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar